Myndskeið mánaðarins
Fornritin til Frankfurt?
Áhugi Þjóðverja á fornritunum er mikill. Það eru stórtíðindi ef ritin verða flutt til Þýskalands en það er ekki auðvelt mál að fara með íslensku handritin úr landi. Ríkisstjórn Íslands þarf að blessa það sérstaklega og mikil öryggisgæsla þarf að vera á sýningarsvæðinu.
Guðrún Nordal prófessor og forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, lét taka fram fáein fornrit úr öryggisgeymslunni af þessu tilefni og sagði frá sögu þeirra.
Myndataka / klipping: Þorsteinn J.
Tónlist: Pétur Grétarsson.
