Stuðningsfélag „Sagenhaftes Island“
Stuðningsfélag við „Sagenhaftes Island“ stofnað í Þýskalandi
Í byrjun desember stofnuðu nokkrir Þjóðverjar og Íslendingar með sér félagið „Sagenhaftes Island“. Félaginu er ætlað að styðja við þau fjölmörgu menningarverkefni í Þýskalandi sem eru á dagskrá í tilefni þess að Ísland verður heiðursgestur bókasýningarinnar í Frankfurt árið 2011. Í stofnskrá félagsins segir að hlutverk þess sé
- að styðja sýningar á sviði íslenskrar myndlistar, ljósmyndunar, kvikmyndunar, hönnunar og byggingarlistar í Þýskalandi.
- að styðja og standa að ráðstefnum, fundum, fyrirlestrum og upplestrum í tengslum við íslenska bókmenntakynningu í Þýskalandi.
- að afla í þessu skyni fjár með félagsgjöldum, stuðningsframlögum og styrkjum ýmiss konar.
Formaður fyrstu félagsstjórnarinnar er Ólafur Davíðsson, fráfarandi sendiherra Íslands í Þýskalandi, en heiðursforseti og verndari félagsins er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands. Allir ræðismenn Íslands í Þýskalandi hafa heitið stuðningi við félagið.
Heimili og varnarþing félagsins er í Berlín. Almennt félagsgjald er 100 evrur, en hægt er að gerast stuðningsfélagi með því að leggja félaginu til 500 evrur og verður þeirra getið sérstaklega á heimasíðu Sagenhaftes Island. Heiðursfélagar nefnast þeir sem leggja fram 1000 evrur. Verður þeirra getið sérstaklega í sýningarskála Íslands á bókasýningunni í Frankfurt 2011.
Verkefnið Sagenhaftes Island fagnar þessari félagsstofnun heils hugar. Íslenska ríkið stendur straum af meginkostnaðinum við framgöngu Íslands í Frankfurt árið 2011. En gengisfall krónunnar hefur gert verkefninu erfitt fyrir, á sama tíma og ljóst er að það er mikill áhugi í Þýskalandi á framlagi Íslands á sviði bókmennta og lista. Stuðningsfélagið mun gera Íslendingum kleift að standa að verkefninu af myndarskap og reisn.
Hægt er að ganga til liðs við félagið með því að skrá sig hér.
