Höfundar
Magnea J. Matthíasdóttir
Um höfund
Magnea Jóhanna Matthíasdóttir (f. 13. janúar 1953) er íslenskt skáld, leikskáld, rithöfundur og þýðandi.
Hún vakti fyrst almenna athygli með ljóðabókinni Kopar árið 1976 og síðan „þríleiknum“ Hægara pælt en kýlt 1978, Göturæsiskandídatar 1979 og Sætir strákar 1981, sem allar fjalla um litríkt líf ungs fólks í Reykjavík. Árið 2008 kom út barnabók hennar Jólasveinar: Af fjöllum í fellihýsi, vísnabók um íslensku jólasveinana með myndskreytingum eftir Ólaf Pétursson.
Skáldverk
Skáldsögur:
Sætir strákar, 1981: Iðunn
Göturæsiskandídatar, 1979: Almenna bókafélagið
Hægara pælt en kýlt, 1978: Almenna bókafélagið
Ljóð:
Kopar, 1976: Almenna bókafélagið
Barnabækur
Barnabækur:
Jólasveinar: Af fjöllum í fellihýsi, 2008: JPV
