Höfundar

Kristian Guttesen

Kristian Guttesen

Um höfund

Kristian, fæddur árið 1974, er búsettur í Reykjavík. Kristian er fæddur í Danmörku árið 1974 þar sem hann ólst upp fyrstu ár ævi sinnar. Hann bjó á Íslandi 1980 - 1981 og frá 1985, en dvaldi við nám í Bretlandi frá 1995 þar sem hann lauk prófi í hugbúnaðarverkfræði, Software Engineering (BS), frá University of Glamorgan í Wales 1999.

Kristian hefur frá tvítugsaldri birt sögur og ljóð í tímaritum og dagblöðum á Norðurlöndum og á síðasta námsári sínu í Wales ritstýrði hann bókmenntatímaritinu Eclipse. Haustið 2006 var Kristian ritstjóri Hermes, tímarits heimspekinema við Háskóla Íslands. Þá var hann fulltrúi Íslands á skáldahátíðinni Ditet E Naimit í Makedóníu í október 2008.

Kristian hefur gefið út tvær bækur hjá Sölku, Mótmæli með þátttöku: Bítsaga (2004) og ljóðabókina Litbrigðamyglu (2005). Einnig þýddi hannBrekkuna, skáldsögu eftir Carl Frode Tiller sem gefin var út árið 2006.

Forlag: Salka


Skáldverk


Ljóð:


Glæpaljóð, 2007: JPV

Litbrigðamygla, 2005: Salka

Mótmæli með þátttöku: Bítsaga, 2004: Salka

Ígull, 2003: Deus

Annó, 1999: Cymru

Skuggaljóð, 1998: Óskráð

Afturgöngur, 1995: Höfundur






Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica