Höfundar

Haukur Már Helgason

Haukur Már Helgason

Um höfund


Haukur Már, fæddur árið 1978, er menntaður heimspekingur og rithöfundur. Hann er einn stofnenda skáldahópsins Nýhil, sem komið var á fót árið 2003.

Fyrsta skáldsaga hans, Svavar Pétur og 20. öldin, kom út árið 2006. Árið 2008 hlaut þýðing hans á Óraplágunni eftir Zlavoj Zizek tilnefningu til Menningarverðlauna DV. Haukur hefur skrifað víðtækt fyrir fjölda tímarita, meðal þeirra eru Reykjavík Grapevine, Lettre Intl. og LRB. Fjórða ljóðabók hans, Rigningin gerir ykkur frjáls, kom út árið 2009 og hlaut góðar viðtökur gagnrýnenda.

Haukur Már hefur auk heimspekináms og ritstarfa stundað nám í kvikmyndagerð við FAMU í Prag.


Skáldverk


Ljóð:


Rigningin gerir ykkur frjáls, 2009: Mál og menning

Rispa jeppa, 2005: Nýhil

2004, 2003: Nýhil

Eini strákurinn í heiminum sem kunni að telja, 2000: Höfundur

 

Skáldsögur:


Svavar Pétur & 20. öldin, 2006: Nýhil






Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica