Höfundar
Helgi Ingólfsson
Um höfund
Helgi Ingólfsson er fæddur 18. júlí 1957 í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Tjörnina 1977, prófi í uppeldis- og kennslufræði 1988 og B.A.-prófi í sagnfræði og bókmenntafræði frá Háskóla Íslands árið 1994. Hann hefur kennt sögu, einkum fornaldarsögu og listasögu, við Menntaskólann í Reykjavík frá 1984. Þá veitti hann sérfræðiaðstoð í sagnfræði við Íslensku alfræðiorðabókina 1988-1990.
Fyrsta bók Helga, Letrað í vindinn: samsærið, kom út árið 1994. Sögusviðið er Rómarborg á tímum keisaraveldisins. Fyrir söguna hlaut Helgi Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar sama ár. Ári síðar kom út sjálfstætt framhald fyrri bókarinnar; Letrað í vindinn: þúsund kossar. Þar með sagði Helgi skilið við Rómarveldi sem sögusvið og færði sig yfir í gamansamar og farsakenndar frásagnir úr íslenskum samtíma. Eftir Helga liggja einnig smásögur, ljóð og greinar í fagtímaritum. Hann hefur einnig fengist við gerð námsefnis.
Árið 2010 hlaut Helgi Blóðdropann, verðlaun Hins íslenska glæpafélags, fyrir skáldsöguna Þegar kóngur kom.
Skáldverk
Skáldsögur:
Runukrossar, 2010: Ormstunga
Þegar kóngur kom, 2009: Ormstunga
Lúin bein, 2002: Mál og menning
Þægir strákar, 1998: Mál og menning
Blá nótt fram í rauða bítið, 1997: Mál og menning
Andsælis á auðnuhjólinu, 1996, 2001: Mál og menning
Letrað í vindinn: Þúsund kossar, 1995: Mál og menning
Letrað í vindinn: Samsærið, 1994: Mál og menning
