Höfundar

Kristján Karlsson

Kristján Karlsson

Um höfund


Kristján Karlsson fæddist þann 26. janúar 1922 að Eyvík á Tjörnesi í Suður-Þingeyjarsýslu. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1942 lagði hann stund á nám í enskum bókmenntum við University of Berkeley í Kaliforníu og lauk þaðan B.A.-prófi 1945. Hann hélt til New York í framhaldsnám við Columbia University og lauk þaðan M.A.-prófi í samanburðarbókmenntum 1947.

Kristján sat í stjórn Hins íslenska bókmenntafélags 1979 og Hins íslenska þjóðvinafélags 1984-1985. Hann átti jafnframt sæti í dómnefnd Minningarsjóðs Björns Jónssonar 1985. Hann ritstýrði tímaritinu Islandica á árunum 1948-1952, sem gefið er út á vegum Cornell háskóla í Íþöku, Andvara 1984 og Skírni, ásamt Sigurði Líndal, 1983-1986. Kristján var einnig meðritstjóri Nýs Helgafells á árunum 1956-59.

Kristján hefur fengist við ljóðasmíð, smásagnagerð og greinaskrif auk þýðinga. Hann hefur ennfremur ritstýrt fjölda bóka. Hann stóð að ýmiss konar útgáfum áður en hann sendi frá sér ljóðabókina Kvæði árið 1976. Hann hlaut Davíðspennann 1991 fyrir ljóðabókina Kvæði 90 og viðurkenningu Rithöfundarsjóðs Ríkisútvarpsins ári síðar.

(bokmenntir.is)


Skáldverk


Ljóð:


New York kvæði, 1983: Almenna bókafélagið

Noregur, New York, 1984: Án útg.

 

Kvæðaúrval, 2009: Bókafélagið Ugla

Kvæði 03, 2003: Óskráð

Kvæði 94, 1994: Óskráð

Kvæði 92, 1992: Almenna bókafélagið

Kvæði 90, 1990: Almenna bókafélagið

Kvæði 87, 1987: Almenna bókafélagið

Kvæði 84, 1984: Almenna bókafélagið

Kvæði 81, 1981: Skuggsjá

Kvæði, 1976: Helgafell

 

Þýdd ljóð í safnritum:


England,Voices from Across the Water [ásamt Matthías Johannessen], 1997: Essex Festival

Noregur, ljóð í Moderne islandske dikt, 1990: Det Norske Samlaget

Þýskaland, ljóð í Wortlaut Island: Isländische Gegenwartsliteratur, 2000: Wirtschaftsverlag


Smásögur:


Komið til meginlandsins frá nokkrum úteyjum, 1985: Almenna bókafélagið


Rit almenns efnis


Fræðibækur:


Halldór Kiljan Laxness, 1962: Helgafell

Hús sem hreyfist: Sjö skáld, 1986: Almenna bókafélagið





Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica