Höfundar
Ágústína Jónsdóttir
Um höfund
Ágústína Jónsdóttir fæddist 4. maí 1949 í Reykjavík. Hún útskrifaðist sem snyrtifræðingur 1968 og leikskólakennari frá Fósturskóla Íslands 1976. Árið 1991 lauk hún B.Ed. prófi frá Kennaraháskóla Íslands.
Fyrsta ljóðabók hennar, Að baki mánans, kom út 1994 og síðan hefur hún sent frá sér fjórar ljóðabækur. Hún á ennfremur valin ljóð, ásamt tveimur öðrum íslenskum skáldkonum, í bókinni Ljósar hendur sem út kom 1996. Ágústína hefur einnig fengist við myndlist og tekið þátt í útlitshönnun bóka sinna og á meðal annars heiðurinn af útliti bókarinnar Lífakur sem tilnefnd var til bókmenntaverðlauna DV 1997.
Forlag: Mál og menning
Skáldverk
Ljóð:
Að baki mánans, 1994: Fjölvi
Lífakur, 1997: Fjölvi
Ljósar hendur: Þrjár íslenskar skáldkonur svífa sólgeislavængjum, 1996: Fjölvi
Snjóbirta, 1995: Fjölvi
Sónata, 1995: Fjölvi
Vorflauta, 2000: Mál og menning
Þýdd ljóð í tímaritum og safnritum:
Bandaríkin, ljóð í ICE-FLOE: International Poetry of the Far North, 2005: Ice-Floe Press
Frakkland, ljóð í 25 poètes islandais d‘aujourd‘hui, 2004: Écrits des Forges / Le Temps des Cerisess
Rit almenns efnis
Rit almenns efnis:
Snyrting og tjáning, 1983: Æskulýðsráð Reykjavíkur
