Höfundar
Kristján Þórður Hrafnsson
Um höfund
Kristján Þórður Hrafnsson stundaði nám í bókmenntum við The New School for Social Research í New York og lauk B.A.-prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands 1992. Hann lauk meistaraprófi í bókmenntum frá Sorbonneháskóla í París 1995.
Kristján Þórður hefur sent frá sér skáldsögurnar Hugsanir annarra og Hinir sterku og ljóðabækurnar Í öðrum skilningi, Húsin og göturnar og Jóhann vill öllum í húsinu vel og fleiri sonnettur. Leikrit hans Leitum að ungri stúlku hlaut 1. verðlaun í hádegisleikritasamkeppni Leikfélags Íslands í Iðnó árið 1998. Þjóðleikhúsið sýndi leikrit hans Já, hamingjan og Böndin á milli okkar. Hann hefur einnig skrifað leikrit fyrir Útvarpsleikhúsið og Listahátíð í Reykjavík.
Kristján Þórður hefur þýtt leikrit fyrir ýmis leikhús og leikhópa, meðal annars eftir David Hare, Yasminu Reza, Terrence McNally, Mike Leigh, Bernard-Marie Koltès og Francis Veber.
Forlag: Mál og menning
Skáldverk
Í vinnslu.
Rit almenns efnis
Í vinnslu.
Leikverk
Í vinnslu.
Barnabækur
Í vinnslu.
