Höfundar
Helgi Björnsson
Um höfund
Helgi Björnsson (f. 1942) nam jarðeðlisfræði við Oslóarháskóla og var þar prófessor um tíu ára skeið. Við þann skóla varði hann doktorsritgerð sína: Hydrology of Ice Caps in Volcanic Regions. Hér heima hefur hann lengst af starfað við Raunvísindastofnun Háskólans og gegnir þar stöðu rannsóknarprófessors. Helgi hefur verið í forystu um jöklarannsóknir á Íslandi í hartnær fjóra áratugi og hefur kynnt rannsóknir sínar með ótal fræðigreinum og fyrirlestrum. Hann var um árabil ritstjóri tímaritsins Jökuls og formaður Jöklarannsóknafélags Íslands. Helgi hefur einnig verið varaformaður Alþjóðlega jöklarannsóknafélagsins.
Helga hafa hlotnast ýmsar viðurkenningar fyrir vísindastörf. Nægir að nefna verðlaun Menningarsjóðs VISA fyrir vísindastörf árið 1999, heiðursdoktorsnafnbót við Stokkhólmsháskóla árið 2002, viðurkenningu Háskólans fyrir lofsverðan árangur í rannsóknum árið 2003 og riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu árið 2008, fyrir framlag til íslenskra og alþjóðlegra jöklarannsókna og vísindasamstarfs.
Bók hans Jöklar á Íslandi hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2009 í flokki fræðirita.
Skáldverk
Í vinnslu.
Rit almenns efnis
Í vinnslu.
Leikverk
Í vinnslu.
Barnabækur
Í vinnslu.
