Höfundar

Kristín Bjarnadóttir

Kristín Bjarnadóttir

Um höfund


Kristín Bjarnadóttir er fædd á Blönduósi 29. maj, 1948. Hún ólst upp í Húnavatnssýslunni og varð gagnfræðingur frá Reykjaskóla í Hrútafirði 1965. Eftir ýmis störf, ársdvöl í Englandi og vetursetu á lýðháskóla í Danmörku nam hún leiklist við Odense Teater Skuespillerskole 1971 – 1974. Hún sótti námskeið í handritagerð við Dramatiska Institutet 1988 – 1989 og las um árabil heimspeki og bókmenntir við Gautaborgarháskóla.

Kristín starfaði innan leikhússins í tvo áratugi, sem leikkona, leiklistarkennari, þýðandi og leikskáld. Um skeið vann hún við dagskrágerð fyrir Ríkisútvarpið, þætti um leiklist og norrænar bókmenntir meðal annars í samvinnu við skáldið Nínu Björk Árnadóttur. Á níunda áratugnum tók hún einnig að starfa við blaðamennsku og árið 1985 kom út viðalsbókin Reyndu það bara! Á árunum 1985 – 2004 birtust frásagnir hennar og ferðasögur í Lesbók Morgunblaðsins, heimildarpistlar á landamærum smásögunnar.

Ljóðaflokkurinn Því að þitt er landslagið kom út árið 1999 en frá og með 1979 birti Kristín ljóð sín í safnritum og tímaritum og í eigin fluttningi meðal annars í Ríkisútvarpinu. Ljóðið Fyrsti Dansinn I – II hlaut hlaut viðurkenningu í ljóðlistarsamkeppninni Ljóðstafur Jóns úr Vör 2002 og ljóð Kristínar og greinar um dans hafa birst í Tímariti Máls og Menningar og Danstidningen í Stokkhólmi. Ljóðabókin Ég halla mér að þér og flýg kom út á íslensku 2007 og á sænsku 2009 og fjallar um argentínskan tangó.

Kristín er félagi í Rithöfundasambandi Íslands síðan 1986. Hún býr á vesturströnd Svíþjóðar og hefur um árabil setið í stjórn menningarfélagsins Litteratursamfundet Kambodja Sverige og er félagi í Författarcentrum Väst. Hún var meðal sex norrænna skálda sem tóku virkan þátt í ljóðahátíðinni Norden möter Mekong, í Kambódíu sumarið 2009.


Skáldverk


Smásögur:


Heimsins besti tangóari/El mejor tanguero del mundo (tvítyngd bók á íslensku og spænsku) 2005: Lyng Bókaútgáfa

 

Ljóðabækur:


Ég halla mér að þér og flýg, 2007: Kb.lyng

Svíþjóð, Jag lutar mig mot dig och flyger, 2009: Staka bokförlag

Því að þitt er landslagið – þættir Veru frá Tungu, 1999: Uglur og ormar

 

Ljóð – hljóðrituð og flutt í Ríkisútvarpi:


Gegnum Frostmúrinn, 1986: Flutt í Ríkisútvarpinu 1986. Óprentað handrit.

Á rás tímans, 1985: Flutt í Ríkisútvarpinu 1985. Óprentað handrit.

Milli ljóss og birtu, 1984: Flutt í Ríkisútvarpinu 1984. Óprentað handrit.

Þetta með múkkann, 1983: Flutt í Ríkisútvarpinu 1983. Óprentað handrit.



Rit almenns efnis


Viðtalsbækur:


Reyndu það bara! – viðtöl við 7 konur, 1985: Bríet


Leikverk


Leikrit:


Gættu þín, 1985: Frumsýnt í Þjóðleikhúsinu 1987, Leikstjóri Helga Bachman

Illa leikinn, 1984: Einleikur. Meðhöfundur Þór Tulinius. Sýnt í Leiklistaskóla Íslands 1984. Leikstjóri Haukur J. Gunnarsson.


Leikgerðir:


 Ástarsaga aldarinnar, 1981: Einleikur, byggður á samnefndum ljóðaflokk eftir Märta Tikkanen, í samvinnu við Kristbjörgu Kjeld: Sýnt í Þjóðleikhúsinu 1981 – 1982. Leikstjóri Kristbjörg Kjeld.




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica