Höfundar

Ófeigur Sigurðsson

Ófeigur Sigurðsson

Um höfund


Ófeigur Sigurðsson rithöfundur og skáld fæddist í Reykjavík, 2. nóvember 1975. Hann hefur komið víða við, m.a. flutt pistla í útvarpi, staðið vaktina á hóteli sem einkennisklæddur næturvörður, beitt afli sínu við uppskipun og huga í heimspekinámi við Háskóla Íslands en þaðan lauk hann BA-prófi árið 2007. Ófeigur er í framvarðarsveit ungra skálda á Íslandi sem hafa átt stóran þátt í að endurnýja ljóðformið með ýmsum hætti síðastliðin ár. Hann hefur tekið virkan þátt í líflegri ljóðasenu síðustu ára, m.a. komið fram á ljóðahátíðum sem haldnar hafa verið undir merkjum Nýhils undanfarin fjögur ár. Ljóðaupplestrar Ófeigs hafa verið með eftirminnilegum hætti, oft í ætt við gjörningalist þar sem notast er við tónlist og aðferðir leikhússins á áhrifaríkan hátt.

Frumraun Ófeigs ljóðabókin Skál fyrir skammdeginu kom út hjá sjálfsútgáfuforlagin Nyrki árið 2001 og vakti athygli ekki síst fyrir þá myrku sýn sem þar birtist. Tveimur árum síðar eða árið 2003 kom önnur ljóðabók hans Handlöngun út hjá Nýhil, en Ófeigur hefur verið meðlimur jaðarbókaútgáfunnar Nýhil síðan. Árið 2005 kom út fyrsta skáldsaga Ófeigs Áferð undir merkjum Traktors, undirforlags Bjarts á Vestfjörðum, og heillaði gagnrýnendur upp úr skónum. Þriðja ljóðabók Ófeigs, Roði, kom síðan út árið 2006 í bókaflokknum Norrænar bókmenntir hjá Nýhil. 2008 komu út tvö verk eftir Ófeig, annars vegar Tvítólaveizlan hjá Nýhil og hins vegar Provence í endursýningu hjá Apaflösu. Í þeirri síðarnefndu yrkist Ófeigur á við Sigfús Daðason skáld. Árið 2009 kom vatnshelda buslubókin Biscayne Blvd, en þar renna saman Flórídaskaginn og Árnessýslan, bókin er bundin inn í sílíkon og vegur ca. 2 kíló.


Skáldverk


Ljóð:


Biscayne Blvd., 2009: Apaflasa

Provence í endursýningu, 2008: Apaflasa

Tvítólaveizlan, 2008: Nýhil

Roði, 2006: Nýhil

Handlöngun, 2003: Nýhil

Skál fyrir skammdeginu, 2001: Nykur


Skáldsögur:


Skáldsaga um Jón og hans rituðu bréf til barnshafandi konu sinnar þá hann dvaldi í helli yfir vetur og undirbjó komu hennar og nýrra tíma, 2010: Mál og menning

Áferð, 2005: Bjartur






Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica