Höfundar
Óskar Guðmundsson
Um höfund
Óskar Guðmundsson lauk stúdentsprófi frá MA 1971 og stundaði nám í sagnfræði við HÍ á árunum 1972-1974. Þá tók við nám í stjórnmálafræði og sögu við Háskólann í Bremen í Þýskalandi 1974-1977 og svo í bókmenntafræði við Kaupmannahafnarháskóla 1979-1980.
Óskar starfaði um árabil sem blaðamaður og ritstjóri á ýmsum miðlum. Hann hefur í hálfan annan áratug unnið sem sjálfstætt starfandi fræðimaður og komið að útgáfu fjölda verka sem ritstjóri og höfundur.
Forlag: JPV
Frekari umfjöllun:
Bók mánaðarins: Snorri: Ævisaga Snorra Sturlusonar 1179-1241Rit almenns efnis
Ævisögur:
Snorri: Ævisaga Snorra Sturlusonar 1179-1241, 2009: JPV
Þýskaland, Snorri Sturluson - Homer des Nordens: Eine Biographie, 2011: Böhlau Verlag
Og náttúran hrópar og kallar: Ævisaga Gulla Bergmann, 1992: Iðunn
Sagnfræði:
Samsala í sjötíu ár: 1935-2005, 2007: Mjólkursamsalan í Reykjavík
Saga biskupsstólanna: Skáholt 950 ára – Hólar 900 ára [aðalritstjóri með dr. Gunnari Kristjánssyni], 2006: Hólar
Hjónin á Ytra-Ósi í Steingrímsfirði, 2005: Hellusund
Öldin ellefta: Minnisverð tíðindi 1001-1100, 2004: Iðunn
Öldin tólfta: Minnisverð tíðindi 1101-1200, 2003: Iðunn
Öldin þrettánda: Minnisverð tíðindi 1201-1250, 2002: Iðunn
Öldin þrettánda: Minnisverð tíðindi 1251-1300, 2002: Iðunn
Fasteignasalar á Íslandi: Saga Félags fasteignasala og æviskrár félaga, 2002: Félag fasteignasala
Öldin fjórtánda: Minnisverð tíðindi 1301: 1400, 2001: Iðunn
Öldin fimmtánda: Minnisverð tíðindi 1401-1500, 2000: Iðunn
Pálsætt undan Jökli: Ævir og aldarfar á Snæfellsnesi, 1999: Þjóðsaga
Samband íslenskra sveitarfélaga 1945-1995: Afmælisrit (ásamt Lýði Björnssyni), 1995: Samband íslenskra sveitarfélaga
Hátíð í hálfa öld: lýðveldi fagnað í Reykjavík [ritstj. með Klemens Jónssyni o.fl.], 1994: ÍTR og Lýðveldishátíðarnefnd
Alþýðubandalagið: Átakasaga, 1992: Svart á hvítu
Rauða dagatalið, 1979: Fjölvís og Mál og menning
