Höfundar

Árni Bergmann

Árni Bergmann

Um höfund


Árni Bergmann er fæddur 22. ágúst 1935 í Keflavík. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Laugarvatni 1954 og magisterprófi í rússnesku frá Moskvuháskóla 1962. Árni var lengi blaðamaður á Þjóðviljanum, hóf störf þar 1962, og gegndi ritstjórnarstarfi við blaðið í 14 ár til ársins 1992. Hann var jafnframt helsti bókmenntagagnrýnandi blaðsins. Árni hefur starfað sem stundakennari í almennri bókmenntafræði og rússnesku við Háskóla Íslands frá árinu 1973. Hann kom einnig að þáttagerð við Sjónvarpið á árunum 1973-1975. Hann átti sæti í stjórn Norræna menningarsjóðsins 1990, sat í stjórn Þýðingarsjóðs og var lengi í ritnefnd Tímarits Máls og menningar.

Árni hefur skrifað fjölda greina um rússneskar og sovéskar bókmenntir sem birst hafa í Tímariti Máls og menningar og víðar og þýtt aragrúa leikrita úr rússnesku fyrir Þjóðleikhúsið, Borgarleikhúsið og Ríkisútvarpið. Fyrsta skáldsaga hans, Geirfuglarnir, kom út 1982 en skáldsagan Þorvaldur víðförli var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 1994 og Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 1998. Auk skáldsagna hefur Árni sent frá sér barnabækur og endurminningabækur.

Forlag: Mál og menning.

(bokmenntir.is)


Skáldverk


Skáldsögur:


Þorvaldur víðförli, 1995: Mál og menning

Sænska, Þorvaldur den vittfarne, 1994: Mál og menning

 

Sægreifi deyr, 1999: Mál og menning

Með kveðju frá Dublin, 1984: Mál og menning

Geirfuglarnir, 1982: Mál og menning


Rit almenns efnis


Ævisögur og endurminningar:


Blátt og rautt: Bernska og unglingsár í tveim heimum, 1986: Mál og menning


Fræðibækur:


Glíman við Guð, 2008: Bjartur

Listin að lesa, 2005: Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands

Blaðið okkar: Fimmtugsafmæli: Aldarafmæi, 1986: Þjóðviljinn


Ferðasögur:


Miðvikudagar í Moskvu, 1979: Mál og menning



Barnabækur


Óskastundir: Saga handa börnum, 1997: Mál og menning

Stelpan sem var hrædd við dýr, 1994: Mál og menning



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica