Höfundar
Guðmundur Óskarsson
Um höfund
Guðmundur fæddist í Reykjavík þann 22. desember 1978. Elstur fjögurra systkina ólst hann upp í Grafarvoginum.
Að loknum menntaskóla vann hann við golfvallarumhirðu, sem starfsmaður á lager, sem hjólbörusveinn við uppgröft Þjóðminjasafns Íslands í Reykholti og að Hólum í Hjaltadal o.fl. Frá árinu 2004 hefur Guðmundur unnið hjá Landsbanka Íslands, þeim gamla og nýja, og sinnt ritstörfum.
Frá honum hafa komið þrjár bækur. Smáprósasafnið Vaxandi nánd - orðhviður(2007) og skáldsögurnar Hola í lífi fyrrverandi golfara (2008) og Bankster (2009), en fyrir hana hlaut Guðmundur Íslensku bókmenntaverðlaunin.
Forlag: Ormstunga
Frekari umfjöllun:
Skáldverk
Skáldsögur:
Bankster, 2009: Ormstunga
Hola í lífi fyrrverandi golfara, 2008: Ormstunga
Smáprósar:
Vaxandi nánd - orðhviður, 2007: Nykur
