Höfundar

Ísak Harðarson

Ísak Harðarson

Um höfund


Ísak Harðarson fæddist í Reykjavík 11. ágúst 1956. Hann lauk stúdentsprófi 1977 og stundaði síðan nám við Kennaraháskóla Íslands auk íslenskunáms við Háskóla Íslands.

Ísak sendi frá sér sína fyrstu bók, ljóðabókina Þriggja orða nafn, árið 1982 og síðan hefur hann gefið út fjölda ljóðabóka, smásagnasafn, skáldsögu og endurminningabók. Ljóð hans komu út í safnritinu Ský fyrir ský árið 2000 og ljóð eftir hann hafa einnig birst í erlendum tímaritum og sýnisbókum. Ísak hefur einnig samið söngtexta, auk þess sem ljóð hans hafa verið notuð til tónlistarflutnings. Hann hefur einnig þýtt bækur eftir erlenda höfunda á íslensku, meðal annars skáldsöguna Taumhald á skepnum eftir breska höfundinn Magnus Mills.

(fengið frá bokmenntir.is)

Forlag: Uppheimar


Skáldverk


Ljóð:


Rennur upp um nótt, 2009: Uppheimar

Hjörturinn skiptir um dvalarstað, 2002: Forlagið

Hvítur ísbjörn, 1995:Forlagið

Rennur upp nótt, 2009: Uppheimar

Ræflatestamentið, 1984: Mál og menning

Síðustu hugmyndir fiska um líf á þurru, 1989: Iðunn

Ský fyrir ský: ljóð 1982-1995, 2000: Forlagið

Slý: Náttbók fyrir draumfærslu, 1985: Óskráð

Stokkseyri, 1994: Forlagið

Útganga um augað læst, 1987: Svart á hvítu

Veggfóðraður óendanleiki, 1986: Mál og menning

Þriggja orða nafn, 1982: Almenna bókafélagið

 

Þýdd ljóð í safnritum:


Danmörk, ljóð í Ljóð ungra skálda = Ung islandsk lyrik, 1991: Fisker

Bandaríkin, ljóð í ICE-FLOE, International Poetry of the Far North, 2003: Ice-Floe Press

Frakkland, ljóð í 25 poètes islandais d´aujourd´hui, 2004: Écrits de Forges / Les Temps de Cerises

Svíþjóð, ljóð í Aurora: en presentation av 21 isländska poeter, 2002: Gondolin

Þýskaland, ljóð í Wortlaut Island: Isländische Gegenwartsliteratur, 2000: Wirtschaftsverlag NW

 

Skáldsögur:


Mannveiðihandbókin, 1999: Forlagið


Smásögur:


Snæfellsjökull í garðinum: Átta heilagra nútímamanna sögur, 1989: Iðunn


Rit almenns efnis


Ævisögur og endurminningar:


Þú sem ert á himnum... þú ert hér! Játningasaga, 1996: Forlagið





Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica