Höfundar
Óskar Árni Óskarsson
Um höfund
Óskar Árni Óskarsson fæddist í Reykjavík 3. október 1950. Hann ólst upp í Þingholtunum og gekk í Miðbæjarskólann. Hann stundaði nám í Samvinnuskólanum á Bifröst 1969 – 1971. Hann sendi frá sér sína fyrstu ljóðabók Handklæði í gluggakistunni árið 1986. Samhliða ritstörfum hefur hann lengi starfað sem bókavörður.
Óskar Árni hefur einkum fengist við ljóðagerð og ljóðaþýðingar og meðal annars sent frá sér þrjár bækur með japönskum hækuþýðingum. Hann ritstýrði og gaf út bókmenntatímaritið Ský sem kom út á árunum 1990 – 1994. Ljóð eftir Óskar Árna hafa birst í fjölmörgum tímaritum og sýnisbókum, íslenskum sem erlendum.
Óskar Árni hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2008 fyrir bókina Skuggamyndir úr ferðalagi. Kom hún út í þýskri þýðingu árið 2011 hjá bókaforlaginu Transit.
Forlag: Bjartur
(Fengið frá bokmenntir.is)
Frekari umfjöllun:
Skáldverk
Minningabækur:
Skuggamyndir úr ferðalagi, 2008: Bjartur
Þýskaland, Das Glitzern der Heringsschuppe in der Stirnlocke: Ein isländisches Familienporträt, 2011: Transit Buchverlag
Ljóð:
Þrjár hendur, 2010: Bjartur
Loftskip, 2006: Bjartur
Myrkrið kringum ljósastaurana, 1999: Bjartur
Án orða: Konkretljóð, 1997: Bjartur
Vegurinn til Hólmavíkur, 1997: Bjartur
Ljós til að mála nóttina, 1996: Mál og menning
Norðurleið, 1993: Mál og menning
Regnhlífarnar í New York, 1993: Ský
Tindátar háaloftanna, 1991: Norðan
Einnar stjörnu nótt, 1989: Norðan niður
Handklæði í gluggakistunni, 1986: Blekbyttan
Ljóðaþýðingar í safnritum:
Bandaríkin, ljóð í ICE-FLOE, International Poetry of the Far North, 2004/2005/2006: Ice-Floe Press
Bandaríkin, ljóð í Visions, 2004: Black Buzzard Press
Frakkland, ljóð 25 Poètes Islandais D´aujourd´hui, 2004: Écrits des Forges / Le Temps des Cerises
Svíþjóð, „Bergstaðarstrætið“, 1988: Café Existens
Þýskaland, ljóð í Wortlaut Island, 2000: Wirtschaftsverlag NW
Örsögur:
Truflanir á vetrarbrautinni, 2004: Bjartur
Lakkrísgerðin, 2001: Bjartur
Smáprósar:
Þýskaland, smáprósar í Die Horen, 2006: Wirtschaftsverlag NW
Sjónvillur, 2007: Smekkleysa
Ráð við hversdagslegum uppákomum, 2006: Smekkleysa
