Höfundar

Ástráður Eysteinsson

Ástráður Eysteinsson

Um höfund


Ástráður Eysteinsson lauk BA-prófi frá Háskóla Íslands 1979, MA-prófi frá University of Warwick í Bretlandi árið 1981, doktorsprófi frá University of Iowa í Bandaríkjunum árið 1987. Hann hefur verið prófessor við Háskóla Íslands frá 1994. Hann sat m.a. í vísindanefnd háskólaráðs og var formaður hennar í tvö ár, var forstöðumaður Bókmenntafræðistofnunar, formaður bókmenntafræði- og málvísindaskorar um árabil, varaforseti hugvísindadeildar og formaður stjórnar Hugvísindastofnunar.

Rannsóknir Ástráðs Eysteinssonar hafa tekið til bókmenntakenninga og bókmenntarýni, módernisma og póstmódernisma og ýmissa annarra þátta nútímabókmennta, einkum innan 20. aldar bókmennta á íslensku, ensku og þýsku. Eftirlendustefna og menningarfræði hafa verið áberandi í nýlegum rannsóknum hans, sem og eyjafræði, auk þess sem hann hefur kannað framsetningu og mótun staða í bókmenntum og öðrum menningarafurðum. Þá hefur hann unnið lengi að rannsóknum á þýðingum og þýðingasögu, og er sjálfur starfandi þýðandi.

Árið 2008 hlaut hann alþjóðleg bókmenntaverðlaun Modernist Studies Association fyrir verkið Modernism, sem hann ritstýrði ásamt Vivian Liska.



Fræðibækur


Fræðibækur:


Modernism. Ritstjórar Ástráður Eysteinsson og Vivian Liska. International Comparative Literature Association, Amsterdam/Philadelphia: John Benjamins 2007 (tvö bindi, 1043 bls.).

Translation — Theory and Practice: A Historical Reader. Ritstjórar Ástráður Eysteinsson og Daniel Weissbort. Oxford: Oxford University Press 2006 (649 bls.).

The Cultural Reconstruction of Places. Ritstjóri Ástráður Eysteinsson. Reykjavík: University of Iceland Press 2006 (224 bls.).

The Concept of Modernism. Ithaca og London: Cornell University Press 1990 (265 bls.). Kiljuútgáfa birtist hjá sama forlagi 1992.


Heimur ljóðsins. Ritstjórar Ástráður Eysteinsson, Dagný Kristjánsdóttir og Sveinn Yngvi Egilsson. Reykjavík: Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands 2005 (350 bls.).

Tvímæli. Þýðingar og bókmenntir. Reykjavík: Bókmenntafræðistofnun og Háskólaútgáfan 1996 (307

bls.).

Heimur skáldsögunnar. Ritstjóri Ástráður Eysteinsson. Reykjavík: Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands 2001 (342 bls.).

Umbrot. Bókmenntir og nútími. Reykjavík: Háskólaútgáfan 1999 (485 bls.).





Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica