Höfundar

Anna S. Björnsdóttir

Anna S.

Um höfund


Anna Svanhildur Björnsdóttir fæddist í Reykjavík þann 30. nóvember 1948.

Anna var greinahöfundur á Vikunni 1992 – 1995. Hún fór að yrkja ljóð og birta í blöðum og tímaritum árið 1985 og 1988 kom út fyrsta ljóðabók hennar, Örugglega ég. Hún hefur síðan sent frá sér fjölda ljóðabóka. Hún hefur staðið að og tekið þátt í ljóðadagskrám hérlendis og erlendis, mest á Norðurlöndum. Mörg ljóða henna hafa verið þýdd á dönsku, sænsku og ensku. Ljóðabókin Mens solen stadig er fremme / Meðan sól er enn á lofti kom út á dönsku og íslensku 2003. Anna hefur sótt rithöfundaþing víða erlendis, fengið nokkrar viðurkenningar og á ljóð í fjölda safnrita.

Anna S. Björnsdóttir hefur verið eigin útgefandi allra bóka sinna nema Mens solen stadig skinner sem Salka gaf út. Hún hefur verið félagi í Rithöfundasambandi Íslands frá 1991 og er meðlimur í Ritlistarhópi Kópavogs.

(fengið frá bokmenntir.is)


Skáldverk


Ljóð:


Draumar eru lengi að rætast, 2010: Höfundur

Þýska, ... und Träume brauchen länger, 2010: Höfundur


Enska, Currents (ljóðaúrval), 2007: Höfundur


Enska, By the seaside (ljóðaúrval), 2006: Höfundur


Meðan sól er enn á lofti, 2001: Höfundur

Danska, Mens solen stadig er fremme, 2003: Salka

 

Á blágrænum fleti, 2005: Höfundur

Yfir hæðina, 2004: Höfundur

Hægur söngur í dalnum, 1998: Höfundur

Í englakaffi hjá mömmu, 1996: Starkaður

Skilurðu steinhjartað, 1993: Höfundur

Blíða myrkur, 1991: Höfundur

Strendur, 1990: Höfundur

Örugglega ég, 1988: Höfundur

 

Þýdd ljóð í safnritum:


Ljóð í 25 poètes islandais d‘aujourd‘hui, 2004: Écrits des Forges / Les Temps des Cerises






Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica