Höfundar

Sigfús Bjartmarsson

Sigfús Bjartmarsson

Um höfund


Sigfús Bjartmarsson fæddist í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu þann 19. júlí 1955. Hann fluttist með fjölskyldu sinni til Reykjavíkur fjögurra ára gamall en var með annan fótinn norður í landi fram á fullorðinsár. Hann las sagnfræði við Háskóla Íslands en lagðist síðan í ferðalög, ferðaðist um Rómönsku Ameríku, eyjar í Karíbahafi, Bandaríkin, Evrópu og Mið-Austurlönd. Milli ferðalaga vann hann fyrir sér með járnabindingum og gulrófnarækt. Hann hélt síðan aftur í reisur til Rómönsku Ameríku árin 1998 og 1999.

Ferðalögin hafa ætíð blásið Sigfúsi anda í brjóst. Fyrstu ljóðabækur hans, Út um lensportið (1979) og Hlýja skugganna (1985), geyma meðal annars svipmyndir þess sem fyrir augu bar í ferðalögunum. Ferðasagan Sólskinsrútan er sein í kvöld, byggir á ferðum hans til Mexíkó og Guatemala en hún var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2001, líkt og ljóðabókin Andræði sem kom út 2004. Sigfús hlaut Menningarverðlaun DV í bókmenntum 1999 fyrir smásagnasafnið Vargatal sem geymir sögur af íslenskum rándýrum. Sigfús hefur einnig lagt stund á þýðingar, meðal annars hefur hann þýtt verk eftir argentíska skáldið Jorge Luis Borges og mexíkóska skáldið Octavio Paz.

Forlag: Bjartur

(bokmenntir.is)


Skáldverk


Smásögur:


Vargatal, 1998: Bjartur

Ísland (ensk þýðing), Raptorhood, 2007: Uppheimar

 

Þýskaland, smásaga í Wortlaut Island, 2000: Wirtschaftsverlag NW

 

Speglabúð í bænum, 1995: Bjartur

Mýrarenglarnir falla, 1990: Mál og menning

Tröllasögur, 1991: Bjartur


Ljóð:


Andræði, 2004: Bjartur

Beint af augum, 1996: Bjartur

Zombíljóðin, 1992: Bjartur

Án fjaðra, 1989: Mál og menning

Hlýja skugganna, 1985: Mál og menning

Út um lensportið, 1979: óskráð

 

Þýdd ljóð í safnritum:


England, ljóð í Brushstrokes of Blue, 1994: Greyhound


Rit almenns efnis


Ferðasögur:


Sólskinsrútan er sein í kvöld, 2001: Bjartur





Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica