Höfundar
Óttar Sveinsson
Um höfund
Óttar Sveinsson er fæddur í Reykjavík 14. október 1958. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1978. Starfaði í Höganes og Helsingborg í Svíþjóð 1980-81 og var við störf og nám í Kaupmannahöfn 1983-85. Hann varð blaðamaður á dagblaðinu DV árið 1988 og starfaði þar til ársins 2003. Á þeim árum var brautin rudd fyrir þær fimmtán bækur sem hann hefur skrifað, eina á ári frá 1994, sannar spennusögur um raunverulega atburði.
Fyrsta bókin, Útkall-Alfa TF-SIF, sem fjallaði um ýmis björgunarafrek þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar, fór strax í eitt af efstu sætum metsölulistans. Allar bækurnar hafa náð álíka vinsældum hjá íslenskum lesendum og þær hafa verið gefnar út víða um heim. Bækurnar þykja spennandi og frásagnaraðferðin grípandi. Eftir að fyrsta bók Óttars kom út ákvað kvikmyndafyrirtækið Rescue 911 í Hollywood að fara til Íslands og setja á svið atburði sem voru viðfangsefni næstu bókar; þegar íslensk hjón féllu á vélsleða niður í hyldjúpa jökulsprungu á Snæfellsjökli. Sú mynd var sýnd í sjónvarpi í um 40 löndum. Óttar hefur einnig átt samstarf við BBC, Readers Digest og fleiri.
Bækurnar fjalla um sögulega atburði til sjós og lands þar sem fólk kemst í lífshættu.Þannig segir ein bókanna frá því þegar áhöfn DC-4 farþegaflugvélarinnar Geysis var týnd á toppi Vatnajökuls í hátt í viku. Önnur lýsir því þegar skip sökk á jólanótt í miðju Atlantshafi í kalda stríðinu og talið var að kafbátur hefði leynst fyrir neðan skipið. Ein bókin fjallar um árás U-300 á stærsta skip sem Íslendingar höfðu yfir að ráða í síðari heimsstyrjöldinni. Í öllum bókunum byggir höfundurinn frásagnirnar á viðtölum við fólkið sem hlut átti að máli – almenna borgara, hermenn, flugmenn, sjómenn og björgunarmenn.
Óttar er búsettur í Hamborg og Reykjavík og vinnur við ritstörf og útgáfumál.
Frekari umfjöllun:
Bók mánaðarins: Útkall - Árás á Goðafoss
Rit almenns efnis
Rit almenns efnis:
Útkall: Þyrluna strax!, 2007: Útkall
Danmörk, Nødkald, 2008: Dokumentas
Útkall: Árás á Goðafoss, 2003: Stöng
Þýskaland, Der Untergang der Godafoss, 2011: Ankerherz Verlag
Útkall í Djúpinu, 2001: Íslenska bókaútgáfan
England, Doom in the Deep, 2004: Lyons Press
Holland, IJsstorm , 2005: Gottmers
Útkall í Atlantshafi á jólanótt, 1999: Íslenska bókaútgáfan
Danmörk, Mayday, Mayday!, 2008: Dokumentas
Danmörk, Mayday, Mayday!: En fantastisk redningsaktion på Atlanterhavet, 2001: Jentas
Útkall: Íslenska neyðarlínan, 1995: Íslenska bókaútgáfan
Kvikmyndað af Rescue 911 Hollywood, 1995
BNA, 1998: Readers Digest
Útkall: Pabbi, hreyflarnir loga, 2010: Útkall
Útkall: Við Látrabjarg, 2009: Útkall
Útkall: Flóttinn frá Heimaey, 2008: Útkall
Útkall: Leifur Eiríksson brotlendir, 2006: Útkall
Útkall: Hernaðarleyndarmál í Viðey, 2005: Útkall
Útkall: Týr er að sökkva, 2004: Útkall
Útkall: Geysir er horfinn, 2002: Stöng
Útkall upp á líf og dauða, 2000: Íslenska bókaútgáfan
Útkall: Fallið fram af fjalli, 1998: Íslenska bókaútgáfan
Útkall: TF–LÍF: Sextíu menn í lífshættu, 1997: Íslenska bókaútgáfan
Útkall á elleftu stundu, 1996: Íslenska bókaútgáfan
Útkall Alfa TF-SIF, 1994: Örn og Örlygur
