Höfundar

Njörður P. Njarðvík

Njörður P. Njarðvík

Um höfund


Njörður P. Njarðvík fæddist á Ísafirði 30. júní 1936. Hann útskrifaðist frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1955, lauk Cand. mag-prófi í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands árið 1964 og Fil. dr. prófi í norrænni fílólógiu frá Göteborgs-Universitet árið 1993.

Njörður er prófessor emeritus við Háskóla Íslands og hefur starfað sem rithöfundur um langt skeið, bækur hans hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál.

Hann var kennari við Gagnfræðaskólann við Vonarstræti 1959-1961 og Hagaskólann 1961-1962. Blaðamaður á Vísi 1962-1963. Kennari við KÍ 1964-1965 og MR 1965-1966. Framkvæmdastjóri Bókaútgáfunnar Skálholts 1964-1966. Lektor við Háskólann í Gautaborg 1966-1971. Lektor í íslenskum bókmenntum við HÍ 1971-1977, dósent 1977-1993 og prófessor frá 1993.

Njörður hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín. Hann hlaut Verðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur fyrir þýðingu barnabókar árið 1986. Árið 1987 var hann sæmdur riddarakross fyrsta stigs finnsku Ljónsorðunnar. Hann varð heiðursfélagi Finlands Svenska Författareförening 1992. Kjörinn ævifélagi Clare Hall College, University of Cambridge árið 1995, sama ár var hann sæmdur stórriddarakrossi finnsku Ljónsorðunnar árið 1995. Árið 2000 hlaut hann verðlaun sænsku akademíunnar fyrir kynningu á sænskri menningu.

Forlag: Uppheimar


Skáldverk


Skáldsögur:


Hafborg, 1993: Iðunn

Finnland, Merilinna, 1995: Otava

 

Í flæðarmálinu, 1988: Iðunn

Finnland, Vourovesi, 1990: Otava


Ekkert mál, 1984: Setberg

Finnland, Piikki, 1986: Otava

 

Dauðamenn, 1982: Iðunn

Finnland, Kohtaloonsa tuomitut, 1985: Tellerup

Svíþjóð, Dödsdömda, 1988: Wahlström & Widstrand

Þýskaland, Männer des Todes, 1988: Aufbau

Eistland, Surma Moistedud, 1990: Loomingu raamatukogu

 

Niðjamálaráðuneytið, 1967: Vaka-Helgafell

Noregur, DFØ : departementet for økslingskontroll, 1969: Fonna Forlag

Danmörk, Må vi få et barn hr. minister : Ministeriet for befolkningskontrol, 1970: Grevas forlag

Rússland, Mínísterstvo detorozhdeníja : Povest, 1971: Sever (tímarit)

Lettland, Dzimstibas ministrija, 1974: óskráð

 

Eftirmál, 2004: JPV


Ljóð:


Aftur til steinsins, 2005: JPV

Búlgaría, Tainopis na dukha, 2001, 2005: Artik

 

Hlustaðu á ljósið, 2009: Uppheimar

Leitin að fjarskanum, 1990: Iðunn

Lestin til Lundar, 1973: Iðunn


Smásögur:


Hver ert þú?, 2010: Uppheimar


Rit almenns efnis

 

Island i forntiden (skrifuð á sænsku), 1973: Wahlström & Widstrand

Danmörk, Islands ældste historie, 1974: Gyldendal

Ísland (ensk þýðing), Birth of a nation, 1978, 1986: Iceland Review

Finnland, Muinainen Islanti, 1989: Otava


The World of the Viking Gods, 2002: Iceland Review

Saga leikrit ljóð: Undirstöðuatriði bókmenntagreiningar, 1975: Iðunn





Barnabækur


Helgi skoðar heiminn, 1976: Iðunn

Danmörk, Helge ser sin verden, 1982: Tellerup

 

Púkablístran, 1989: Iðunn

Ísland (ensk þýðing), The demon whistle, 1995: Iceland Review

Ísland (þýsk þýðing), Das Teufelspheifchen, 1995: Iceland Review

 

Audun och Isbjörnen (skrifuð á sænsku), 1991: Carlsen

Ísland, Auðun og ísbjörninn, 1991: Iðunn

Færeyjar, Eyðun og hvítabjörnin, 1991 : Föroya Lærarafelag

Noregur, Audun og isbjörnen, 1991: Carlsen

Danmörk, Audun og isbjörnen, 1991: Carlsen

 

Sigrún fer á sjúkrahús, 1983: Mál og menning

Sigrún flytur, 1978: Iðunn

Sigrún eignast systur, 1977: Iðunn





Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica