Höfundar
Ólafur Haukur Símonarson
Um höfund
Ólafur Haukur Símonarson fæddist 24. ágúst 1947 í Reykjavík. Hann lærði innanhússarkitektúr í Kaupmannahöfn 1965-69 og síðan bókmenntir í Kaupmannahöfn og Strasbourg 1969-72. Hann flutti heim frá Danmörku 1974. Ólafur vann í tvö ár við dagskrárgerð hjá Ríkissjónvarpinu, m.a. við gerð heimildarmynda um íslenskt þjóðlíf. Hann var leikhússtjóri Alþýðuleikhússins 1980-82. Hann hefur fengist við ýmis önnur störf gegnum tíðina, en frá 1976 hefur hann að mestu helgað sig bókmenntaskrifum og þýðingum.
Ólafur Haukur hefur setið í stjórnum og ráðum ýmissa félaga og samtaka. Hann var formaður Leikskáldafélags Íslands frá 1986 - 1999, varaformaður Rithöfundasambands Íslands frá 1994, hefur setið í stjórn STEFs á Íslandi frá 1986, gegnt embætti varaforseta Leikskáldanefndar Alþjóðaleiklistarsambandsins frá 1993 og setið í verkefnavalsnefnd Leiklistarhátíðarinnar í Bonn (Bonner Theater Biennale) árin 1992 og 1994.
Ólafur Haukur hefur samið fjölda leikrita fyrir svið, útvarp og sjónvarp sem notið hafa mikilla vinsælda. Nefna má Blómarósir, Bílaverkstæði Badda, Hafið, Gauragang, Þrek og tár og Kennarar óskast. Kvikmyndin Ryð (1990) var gerð eftir leikritinu Bílaverkstæði Badda og kvikmyndin Hafið (e. Baltasar Kormák), er byggð á samnefndu leikriti Ólafs Hauks.
Fyrir utan ljóð og smásögur hefur Ólafur sent frá sér fjölmargar skáldsögur, svo sem Vatn á myllu kölska, Gauragang og Rigningu með köflum. Árið 1997 fékk sakamálasagan Líkið í rauða bílnum frönsk bókmenntaverðlaun fyrir bestu norrænu glæpasöguna. Ólafur Haukur hefur þýtt fjölda bóka, leikrita og kvikmynda. Hann hefur sent frá sér fræðibækur og skrifað greinar og smásögur í blöð, tímarit og safnrit hérlendis og erlendis. Einnig hefur hann samið og gefið út á hljómplötum fjölda sívinsælla sönglaga og texta.
(fengið frá bokmenntir.is)
Skáldverk
Skáldsögur:
Vatn á myllu kölska, 1978, 1979: Mál og menning
Danmörk, Vand på fandens mølle, 1979: s.n.
Líkið í rauða bílnum, 1986: Sögusteinn
Frakkland, Le cadavre dans la voiture rouge, 1997: Presses Université de Caen
Ein báran stök, 2010: Skrudda
Fuglalíf á Framnesvegi, 2009: Skrudda
Fluga á vegg: Sönn lygasaga, 2008: Skrudda
Rigning með köflum, 1996: Ormstunga
Vík milli vina, 1983: Mál og menning
Almanak jóðvinafélagsins, 1981: Mál og menning
Galeiðan, 1980: Mál og menning
Ljóð:
Bandaríkin, ljóð í The Postwar Poetry of Iceland, 1982: University of Iowa Press
Æskuljóð hvíta mannsins, 2003: Skrudda
Rauði svifnökkvinn: Lestrar- og myndabók, 1975: Heimskringla
Haustsýningin 1974, 1975: Letur
Má ég eiga við þig orð: Ljóð handa fólki sem aldrei les ljóð, 1973, 1976: Höfundur
Unglingarnir í eldofninum, 1970: Helgafell
Smásögur:
Þýskaland, „Gruß“ í Wortlaut Island, 2000: Wirtschaftsverlag NW
Ísland (norsk þýðing), „Vaktmester Robbi“, í Kulens side, 2007: Dimma
Sögur úr sarpinum, 1987: Íslenski kiljuklúbburinn
Vélarbilun í næturgalanum, 1977, 1978: SÚR
Dæmalaus æfintýri,1973: Höfundur
Rit almenns efnis
Ævisögur:
Stormur strýkur vanga: Ævisaga Guðjóns Símonarsonar, 1992: Forlagið
Leikverk
Kvikmyndahandrit:
Ryð (byggt á leikritinu Bílaverkstæði Badda), 1990: Óskráð
Leikrit:
Hattur og Fattur og Sigga sjoppuræningi, 2004: Óskráð
Vitleysingarnir, 2003: Skrudda
Græna landið, 2003: Óskráð
Gaggalú, 2003: Óskráð
Viktoría og Georg, 2002: Óskráð
Boðorðin 9: Hjónabandssaga á augabragði, 2002: Leikfélag Reykjavíkur
Meiri gauragangur, 1998: Óskráð
Kennarar óskast, 1996: Óskráð
Ævintýri á harða diskinum, 1995, 1996: Óskráð
Þrek og tár, 1995: Ormstunga
Gauragangur, 1994: Óskráð
Hafið, 1992, 1995: Forlagið
Kjöt, 1990: Óskráð
Á köldum klaka, 1990: óskráð
Hundheppinn, 1989: Óskráð
Bílaverkstæði Badda, 1987: Óskráð
Kötturinn sem fór sínar eigin leiðir, 1985: Óskráð
Ástin sigrar, 1985: óskráð
Milli skinns og hörunds, 1984: Mál og menning
Grettir, 1980: Óskráð
Blómarósir, 1979: Óskráð
Blái fíllinn, 1973: Óskráð
Andrókles og ljónið, 1972: Óskráð
Útvarpsleikrit:
Flutt í RÚV, í Vestur-Þýska útvarpinu og Slóvenska útvarpinu, 1994: Óskráð
Happdrættisvinnungurinn, 1992: RÚV
Barnabækur
Barnabækur:
Gauragangur, 1988, 1993, 1999: Mál og menning
Danmörk, Tumult, 1992: Amanda
Ísland (ensk þýðing), Turmoil, 2007: Skrudda
Fólkið í blokkinni, 2001, 2006: Mál og menning
Hattur og Fattur komnir á kreik (myndskreyting: Sigrún Eldjárn), 1984: Iðunn
Hattur og Fattur: Nú er ég hissa! (myndskreyting: Halldór Baldursson): , 1999: Flugfélagið Loftur
Meiri gauragangur, 1991,1998: Forlagið
