Höfundar
Árni Björnsson
Um höfund
Árni Björnsson þjóðháttafræðingur, Cand mag. í íslenskum fræðum og Dr. phil. í menningarsögu frá Háskóla Íslands, er fæddur árið 1932 í Dölum vestur. Árin 1961-1965 var hann lektor í íslensku við háskóla í Greifswald og Berlín í Þýskalandi. Eftir það var hann önnungur við Handritastofnun Íslands. Árni hefur verið forstöðumaður þjóðháttadeildar Þjóðminjasafns Íslands um langan tíma þar sem hann hefur sinnt rannsóknum á þjóðháttum Íslendinga á 19. og 20. öld. Árin 1978-1990 var hann í stjórn Kvikmyndasafns Íslands, 1983-1987 í útvarpsráði og í þjóðminjaráði frá 1991. Hann hefur setið í ritnefnd árbókar Ferðafélagsins frá 1987.
Árni hefur ritað fjölda greina og bóka. Má þar nefna Íslenskt vættatal (1990) og Saga daganna (1993). Árið 2000 kom út bókin Wagner og Völsungar, þar sem Árni tekur til skoðunar meðferð Wagners á íslenskum bókmenntum í Niflungahringnum.
Fræðirit
Bækur:
Wagner og Völsungar: Niflungahringurinn og íslenskar fornbókmenntir, 2000: Mál og menning
Ísland (þýsk þýðing), Island und der Ring des Nibelungen: Richard Wagner – Eddas un Sagas, 2003: Mál og menning
England, Wagner and the Volsungs, 2003: Viking Society for Northern Research
Saga Daganna, 1977: Saga
Icelandic Feasts and Holidays 1980: Iceland Review (kom einnig út sem High Days and Holidays in Iceland, 1995: Mál ogmenning)
Úr torfbæjum inn í tækniöld I: Íslenskt mannlíf milli stríða, 2003: Örn og Örlygur
Dalaheiði kringum hæl Hvammsfjarðar, 1997: Árbók Ferðafél. Íslands
Saga daganna (aukin), 1993: Mál og menning
Íslenskt vættatal, 1990: Mál og menning
Eyjar í Snæfellsnes- og Dalasýslum, 1989: Árbók Ferðafélags Íslands
Hræranlegar hátíðir: Gleðskapur og guðsótti í kringum páska, 1987: Örn og Örlygur
Íslandsmyndir Mayers (ásamt Ásgeiri S. Björnssyni), 1986: Örn og Örlygur
Þorrablót á Íslandi, 1986: Örn og Örlygur
Gamlar þjóðlífsmyndir (ásamt Halldóri J. Jónssyni) 1984: Bjallan
Í jólaskapi (ásamt Hring Jóhannessyni), 1983: Bjallan
Merkisdagar á mannsævinni (aukin), 1996: Mál og menning
Merkisdagar á mannsævinni, 1981: Saga
Jól á Íslandi, 1963: Ísafoldarprentsmiðja
Greinar og bókakaflar:
„Das Fest aller Kleinode“, Zur Weihnachtzeit der Welt. Berlin 1980.
„Den islandske selvrådighed“, [1984] Folklore & folkkultur, 1990
„Prerequisites for Saga Writing“, Approaches to Vínland, 2001.
„Wagner og Völsungene. Islandske kilder til Der Ring des Nibelungen“, Eyðvinur. Tórshavn 2005, 176-184.
„Fri os fra vikingerne“, Fólkaleikur: Heiðursrit til Jóan Paula Joensen. Tórshavn 2005, 53-61.
„Die Völuspá aus einem neuen Blickwinkel“, Festschrift für Professor Kurt Schier. Berlin 2009.
„Hjátrú á jólum“, Skírnir 1961.
„Sumardagurinn fyrsti“, Árbók Fornleifafél. 1970
„Upp, upp mitt skáld. Nokkur matsatriði varðandi Hallgrím Pétursson“, Afmælisrit
Steingríms J. Þorsteinssonar 1971.
„Um íslenska þjóðhætti“, Tímarit Máls og menningar 1971.
„Almennir þjóðhættir”, Saga Íslands II. 1974.
„Vökustaur”, Árbók Fornleifafél. 1975
„Þorrablót. Minjar og menntir.”, Afmælisrit helgað Kristjáni Eldjárn 1976.
„Uppsögn herstöðvasamningsins“, Réttur 1977.
„Saga hestalækninga á Íslandi. Andmæli við doktorsvörn.“, Árbók Fornleifafél. 1978
„Töðugjöld og sláttulok“, Árbók Fornleifafél. 1979
„Sögubrot af hernámsandstöðu“, Réttur 1980.
„Geisladagur“ Árbók Fornleifafél. 1980
„Sprengidagur“, Árbók Fornleifafél. 1981.
„Barnsöl og sængurbiti“ Afmæliskveðja til Halldórs Halldórssonar 1981.
„Pálsmessa og kyndilmessa“ Árbók Fornleifafél. 1982.
„Smalabúsreið“, Árbók Fornleifafél. 1983.
„Gísli Gestsson“, Árbók Fornleifafél. 1984.
„Þjóðminningardagar“, Árbók Fornleifafél. 1984.
„Strákur af Grímsstaðaholtinu [Um Eðvarð Sigurðsson]“, Dagsbrún 1984-85.
„Eldbjörg“, Árbók Fornleifafél. 1986.
„Lúter og lífsgleðin“, Lúther og íslenskt þjóðlíf. 1989.
„Tímatal“, Íslensk þjóðmenning VII. 1990.
„Góa“, Árbók Fornleifafél. 1991.
„Hvað merkir þjóðtrú?“, Skírnir 1996.
„Af hverju voru íslenskar fornsögur skrifaðar á móðurmáli?“, Tímarit MM 1998.
„Íslenskar uppfinningar“, Kvískerjabók 1998.
„Trú og efi“, Skírnir 1998.
„Hvað er (ó)vilji?“, Saga 2002.
