Höfundar
Ármann Jakobsson
Um höfund
Ármann Jakobsson er fæddur 18. júlí, 1970. Hann er íslenskufræðingur og rithöfundur. Hann útskrifaðist frá Menntaskólanum við Sund árið 1990, lauk BA-prófi frá Háskóla Íslands 1993 og MA-prófi árið 1996. Hann lauk doktorspróf frá Háskóla Íslands 2003 og er nú kennari þar í íslenskum bókmenntum fyrri alda.
Ármann hefur unnið að fjölda rannsóknarverkefna, þar má nefna: Hugmyndafræði konungsvalds í norrænum miðaldatextum; Morkinskinna: Uppruni, formgerð, frásagnarlist og hugmyndafræði; Staða barna, unglinga og gamalmenna í norrænum miðaldabókmenntum; Álfar, dvergar og jötnar í norrænum heimildum; Karlmennska og kyngervi í norrænum miðaldatextum.
Hann hefur sett saman þrjú fræðirit (Í leit að konungi 1997, Staður í nýjum heimi 2002,Tolkien og hringurinn 2003) og eina örsögubók (Fréttir frá mínu landi 2008) en Vonarstræti er hans fyrsta skáldsaga. Enn fremur hefur hann ritstýrt bókunum Miðaldabörn (2005) og Kona með spegil (2005) en sú síðarnefnda er safn greina um og eftir Svövu Jakobsdóttur.
Forlag: JPV
Skáldverk
Skáldsögur:
Glæsir, 2011: JPV útgáfa
Vonarstræti, 2008: Forlagið
Örsögur:
Fréttir frá mínu landi: Óspakmæli og örsögur, 2008: Nýhil
Fræðibækur
Fræðibækur:
Tolkien og Hringurinn. Rvík 2003.
Staður í nýjum heimi. Konungasagan Morkinskinna. Rvík 2002.
Í leit að konungi. Konungsmynd íslenskra konungasagna. Rvík 1997.
(Ritstjórn ásamt Annette Lassen og Agnetu Ney) Fornaldarsagaerne, myter og virkelighed: studier i de oldislandske fornaldarsögur Norðurlanda. Annette Lassen, Agneta Ney og Ármann Jakobsson ritstýrðu. Khöfn. (Væntanleg 2008)
(Ritstjórn ásamt Torfa H. Tulinius): Miðaldabörn. Reykjavík 2005.
(Ritstjórn): Kona með spegil: Svava Jakobsdóttir og verk hennar. Reykjavík 2005.
(Ritstjórn ásamt Annette Lassen og Agnetu Ney): Fornaldarsagornas struktur och ideologi: Handlingar från ett symposium i Uppsala 31.8–2.9 2001. Uppsala 2003. (Nordiska texter och undersökningar 28)
