Höfundar
Aðalsteinn Ingólfsson
Um höfund
Aðalsteinn Ingólfsson er fæddur 1948. Hann stundaði nám í bókmenntum og listasögu í Skotlandi, Englandi, Ítalíu og Svíþjóð. Lauk mastersprófi í enskum bókmenntum og málsögu frá háskólanum í St. Andrews, Skotlandi og mastersprófi í listasögu frá Courtauld Institute of Art í Lundúnum.
Hann hefur starfað sem listfræðingur við Listasafn Reykjavíkur (Kjarvalsstaði), Listasafn Íslands og fleiri stofnanir, verið listgagnrýnandi og menningarritstjóri DV, auk þess að vinna þætti fyrir útvarp og sjónvarp. Hann hefur kennt við Myndlista-og handíðaskóla Íslands og Háskóla Íslands.
Aðalsteinn hefur ritað á þriðja tug bóka um íslenska myndlistarmenn, þar á meðal um Kjarval, Kristínu Jónsdóttur, Eirík Smith, Leif Breiðfjörð, Kristján Davíðsson, Sigurjón Ólafsson og Erró, auk bóka um færeyska listamenn. Til skamms tíma var hann forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands, en vinnur nú við rannsóknir, skrif og sýningarstjórn.
Rit almenns efnis
Listfræði:
Færeyjar, Eyðun av Reyni, 2008: Föröya Listasavn
Ísland, Eiríkur Smith: 2000-2002 (texti á íslensku og ensku), 2002: Hafnarborg
Ítalía, Illustrazione Del Nord Europa / Nordeuropäische Illustrationskuns (ásamt Nina Christensen, Sirpa Kivilaakso, Morten Berner), 2002: Bolzano di Citta
Ísland, Mikines (gefin út á ensku, dönsku íslensku og færeysku), 1996: Nesútgáfan Reykjavík
Þýskaland, Leifur Breiðfjörð: Steint gler / Stained Glass / Glassbilder, 1995: Schanbacher
Danmörk, Nordisk Smykkekunst/Nordic Jewellery (ásamt Lars Dybdahl, Marianne Aav, Ingegjerd Hanevold, Kerstin Wickmann (texti á dönsku, ensku, finnsku, sænsku, norsku og íslensku)), 1995: Nyt Nordisk Forlag Arnold Busck
Noregur, Patrick Huse: Nordiske Landskap/ Nordic landscapes/ Norrænt landslag (ásamt Jan Åke Petterson, Öysten Loge (texti á norsku, ensku og íslensku)), 1994: Cappelen Fakta
Einfarar í íslenskri myndlist (ljósmyndir Páll Stefánsson), 1990: Iceland Review/Almenna bókafélagið
Ísland, Naive and fantastic art in Iceland (ljósmyndir Páll Stefánsson), 1989: Iceland Review
Ísland, Furðuveröld Alfreðs Flóka / The Singular World of Alfred Flóki (texti á íslensku og ensku), 1986: Bókaútgáfan
Kjarval: Málari lands og vætta (ásamt Matthías Jóhannessen), 1982: Saga
Ísland, Kjarval: a painter of iceland, 1981: Iceland Review
Ásgerður Búadóttir - Veftir, 2009: Uppheimar
Sigurjón Ólafsson: ævi og list (ásamt Lise Funder), 1998-1999: Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Kristján Davíðsson, 1992: Mál og menning
Erró: Margfalt líf, 1991: Mál og menning
Kristín Jónsdóttir: Listakona í gróandanum, 1987: Þjóðsaga
Eríkur Smith, 1982: Listasafn ASÍ
Skáldverk
Ljóð:
Óminnisland, 1971: Almenna bókafélagið
