Höfundar
Ágúst Borgþór Sverrisson
Um höfund
Ágúst Borgþór Sverrisson er fæddur 19. nóvember 1962 í Vesturbæ Reykjavíkur og ólst þar upp til átján ára aldurs. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1983. Hann stundaði þýsku- og bókmenntanám einn vetur í Berlín og annan í München. Árin 1990-1992 lærði hann heimspeki við Háskóla Íslands.
Starfsferill Ágústs Borgþórs hefur að miklu leyti einkennst af skrifum, t.d. blaðamennsku og kynningarskrifum. Hann hóf slíkan feril hjá Miðlun ehf. árið 1989 og starfar nú sem prófarkalesari og textasmiður á Íslensku auglýsingastofunni.
Ágúst Borgþór hóf að birta sögur í skólablöðum í M.R. en árið 1987 fékk hann birta smásöguna „Saknað“ í Tímariti Máls og menningar. Á þeim árum vann hann að sögum fyrir fyrsta smásagnasafn sitt og ljóðabókina Eftirlýst augnablik. Töluvert hlé varð á skrifum eftir þetta en segja má að samfelld smásagnaskrif hefjist árið 1993. Ágúst Borgþór hefur nú sent frá sér fimm smásagnasöfn en síðasta safn hans var Tvisvar á ævinni sem kom út haustið 2004. Auk þess hafa verk hans birst í safnritum og tímaritum. Honum hafa hlotnast ýmsar viðurkenningar fyrir verk sín, meðal annars fyrstu verðlaun í smásagnakeppni Strik.is 2001.
Útgefandi: Skrudda
(fengið frá bokmenntir.is)
Skáldverk
Skáldsögur:
Hliðarspor, 2007: Skrudda
Smásögur:
Tvisvar á ævinni, 2004: SkruddaSumarið 1970, 2001: Ormstunga
Hringstiginn, 1999: Ormstunga
Í síðasta sinn, 1995: Skjaldborg
Síðasti bíllinn, 1988: Ábs-bækur
