Höfundar
Sigurður Pálsson
Um höfund
Sigurður Pálsson fæddist 30. júlí 1948 á Skinnastað í N-Þingeyjarsýslu. Hann lauk landsprófi frá Hagaskóla 1963 og stúdentsprófi frá M.R. 1967. Lærði frönsku í Toulouse og París 1967-1968. Nam leikhúsfræði og bókmenntir í Sorbonne 1968-1973 og síðan aftur frá 1978-1982. Lauk maîtrise-gráðu og D.E.A. (fyrri hluta doktorsgráðu). Jafnframt þessu nam hann við CLCF kvikmyndaskólann og tók lokapróf þaðan.
Um langa hríð hafa ritstörf og þýðingar verið aðalverksvið Sigurðar þótt hann hafi unnið á mörgum öðrum sviðum, svo sem við sjónvarp (leikstýrði þremur sjónvarpsmyndum) og kvikmyndir (framleiðandi tveggja kvikmynda). Hann kenndi við Leiklistarskóla Íslands frá stofnun hans 1975-1978 og hefur einnig unnið sem fréttaritari, leiðsögumaður, háskólakennari o.m.fl. Sigurður var einn af Listaskáldunum vondu 1976. Forseti Alliance Française 1976-1978. Formaður Rithöfundarsambands Íslands 1984-1988. Skipaður formaður Yrkjusjóðs árið 2003 af Vigdísi Finnbogadóttur.
Út hafa komið þréttán ljóðabækur eftir Sigurð, þrjár skáldsögur og ein endurminningabók. Utan gátta (2008) er ellefta leikrit hans sem sviðsett er, en síðasta leikrit hans var einnig flutt í Þjóðleikhúsinu (Edith Piaf, 2004). Sigurður hefur þýtt rúmlega tuttugu verk úr frönsku og einnig tvö leikrit eftir Arthur Miller.
Árið 1994 kom út úrval ljóða hans á frönsku, árið 2005 úrval ljóða hans á búlgörsku og einnig á ítölsku. Árið 2008 kom út stórt úrval ljóða hans á spænsku. Ljóð eftir hann hafa birst í þýðingum á einum tíu tungumálum.
Sigurður Pálsson var valinn borgarlistamaður 1987. Fékk bókmenntaviðurkenningu Ríkisútvarpsins 1999. Bóksalaverðlaunin í flokki ljóðabóka fyrir Ljóðtímaleit 2001. Ljóð námu völd var tilnefnd til Norðurlandaverðlauna 1993, Ljóðlínuskip var tilnefnd til Bókmenntaverðlaunanna 1995, Ljóðtímaleit til sömu verðlauna 2001 og Minnisbók 2007, en fyrir þá bók fékk hann verðlaunin.
Menningarmálaráðherra Frakklands veitti Sigurði Riddarakross af Orðu bókmennta og lista árið 1990 (Chevalier de l‘Ordre des Arts et des Lettres). Frakklandsforseti sæmdi hann Riddarakrossi Frönsku Heiðursorðunnar árið 2007 (Chevalier de l‘Ordre National du Mérite).
Forlag: JPV
Skáldverk
Ljóðabækur:
Ljóð námu völd, 1990: Forlagið
Ísland (sænsk þýðing), Dikten tog makten, 1993: Menntamálaráðuneytið
Ljóð vega salt, 1975: Heimskringla
Frakkland, Poèmes des hommes et du sel, 1993: Orphée/La différence
Ljóðorkuþörf, 2009: JPV útgáfa
Ljóðnámusafn (ljóðabækurnar Ljóð námu land, Ljóð námu menn og Ljóð námu völd), 2008: JPV
Ljóðorkusvið, 2006: JPV
Ljóðtímavagn, 2003: JPV
Ljóðtímaleit, 2001: JPV
Ljóðtímaskyn, 1999: Forlagið
Ljóðlínuspil, 1997: Forlagið
Ljóð vega safn (ljóðabækurnar Ljóð vega salt, Ljóð vega menn og Ljóð vega gerð), 1996: Forlagið
Ljóðlínuskip, 1995: Forlagið
Ljóðlínudans, 1993: Forlagið
Ljóð námu menn, 1988: Forlagið
Ljóð námu land, 1985: Forlagið
Ljóð vega gerð, 1982: Iðunn
Ljóð vega menn, 1980: Mál og menning
Þýdd ljóð í safnritum:
Búlgaría, Ars Poetica Europeia: Ljóðasafn Sigurðar á búlgörsku, 2006: Zlatorg
BNA, ljóð í ICE-FLOE, International Poetry of the Far North, 2001: Ice-Floe
BNA, ljóð í The Postwar Poetry of Iceland, 1982: University of Iowa Press
Frakkland, Garðurinn – Jardin, 2006: Matarasso
Frakkland, ljóð í Littérature d‘islande, 1983: Europe
Frakkland, ljóð í 25 poètes islandais d‘aujourd‘hui, 2004: Écrits des Forges / Le Temps des Cerises
Ísland (ensk þýðing), ljóð í Treasures of Icelandic Verse, 1996: Mál og menning
Spánn, Vientos y nubes (úrval ljóða), 2008: Libros del innombrable
Þýskaland, ljóð í Wortlaut Island, 2000: Wirtschaftsverlag NW
Skáldsögur:
Næturstaður, 2002: JPV
Blár þríhyrningur, 2000: JPV
Parísarhjól, 1998, 1999: Forlagið
Rit almenns efnis
Ævisögur og endurminningar:
Bernskubók, 2011: JPV útgáfa
Minnisbók, 2007: JPV
Leikverk
Leikgerðir:
Hótel Þingvellir, 1990: óskráð
Leikrit:
Utan gátta, 2009: Völuspá
Edith Piaf, 2004: óskráð
Tattú, 2003: óskráð
Einhver í dyrunum, 2000: Leikfélag Reykjavíkur
Völundarhús, 1997: Leikfélag Reykjavíkur
Dvínandi rödd, 1991: óskráð
Húsið á hæðinni eða hring eftir hring, 1986: óskráð
Miðjarðarför eða innan og utan við þröskuldinn, 1983: óskráð
Hlaupvídd sex, 1977: óskráð
Undir suðvesturhimni, 1976: óskráð
Hvað er í kokinu á hvalnum?, 1975: óskráð
Sjónvarpshandrit:
Nóttin, já nóttin, 1989: óskráð
