Höfundar

Andri Snær Magnason

Andri Snær Magnason

Um höfund


Andri Snær Magnason fæddist í Reykjavík þann 14. júlí 1973. Hann er Árbæingur í fjórða lið en rekur einnig ættir norður á Melrakkasléttu. Hann lauk stúdentsprófi af eðlisfræðibraut Menntaskólans við Sund árið 1993 og B.A. prófi frá Íslenskudeild Háskóla Íslands árið 1997. Lokaritgerð hans, Maður undir himni, fjallaði um ljóðskáldið Ísak Harðarson og var hún gefin út í ritröð Bókmenntafræðistofnunar Háskóla Íslands, Ung fræði, 1999. Andri Snær vann að verkefni fyrir Árnastofnun sem var tilnefnt til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands og í framhaldi af því kom út geisladiskurinn Raddir í samvinnu Smekkleysu og Árnastofnunar. Hann inniheldur upptökur íslenskra þjóðlaga sem safnað var umhverfis landið frá 1903 - 1973. Andri Snær hafði forgöngu um útgáfu bókarinnar Bók í mannhafið sem var fyrsta útgefna bók ársins 2000. Þetta er ljóðasafn nokkurra ungra höfunda, meðal annars Andra Snæs, sem ritstýrði verkinu. Bókin er ekki til sölu heldur er ætlast til að hún veltist um sem almenningseign.

Andri hefur sent frá sér bækur af ýmsum toga, meðal annars ljóðabækur, smásögur, skáldsögu og barnabókina Sagan af bláa hnettinum sem hefur verið þýdd á fjölmörg mál. Leikrit byggt á bókinni var sett upp í Þjóðleikhúsinu 2001 og í Lorraine Kimsa Theatre for Young People í Toronto í Kanada 2005. Leikrit Andra, Náttúruóperan, var sett upp af leikfélagi Menntaskólans við Hamrahlíð árið 1999 og hann samdi leiktextann í Úlfhamssögu sem Hafnarfjarðarleikhúsið setti á svið 2004. Leikrit hans og Þorleifs Arnarssonar, Eilíf hamingja, var frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhússins í janúar 2007.

Andri Snær hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir verk sín, m.a. hlaut Sagan af bláa hnettinum Íslensku bókmenntaverðlaunin 1999 í flokki fagurbókmennta, fyrst barnabóka. Skáldsagan LoveStar fékk Menningarverðlaun DV í bókmenntum 2003 og Draumalandið: Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana í flokki hand- og fræðibóka 2006 og Íslensku bókmenntaverðlaunin sama ár. Þar með varð Andri Snær fyrstur höfunda sem hlotið hafa verðlaunin í báðum flokkum. Óhætt er að segja að bókin hafi slegið í gegn og hélt Andri fjölda erinda víðs vegar um landið í kjölfar útgáfu hennar.

Forlag: Mál og menning. 

(bokmenntir.is)


Tengt efni:

Bók mánaðarins: Merkasta mannanna verk?


Skáldverk


Skáldsögur:


LoveStar, 2002, 2004: Mál og menning

Þýskaland, 2010: Bastei Lübbe

 

Ljóðabækur:


Bónusljóð, 1996: Bónus

Þýskaland, Bónus - Supermarktgedichte, 2011: Orange Press


Bónusljóð: 33% meira, 2003: Bónus

Ljóðasmygl og skáldarán, 1995: Nykur


Smásögur:


Engar smá sögur, 1996: Mál og menning


Rit almenns efnis


Rit almenns efnis:


Draumalandið: Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð, 2006: Mál og menning

England, Dreamland: a self-help manual for a frightened nation, 2008: Citizen Press

Þýskaland, Traumland: Was bleibt, wenn alles verkauft ist?, 2011: Orange Press

 

Maður undir himni: um trú í ljóðum Ísaks Harðarsonar, 1999: Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands


Leikverk


Leikrit:


Eilíf hamingja, 2006: óskráð

Úlfhamssaga, 2004: óskráð

Náttúruóperan, 1999: óskráð


Leikgerð:


Blái hnötturinn, 2001 (Þjóðleikhúsið), 2005 (Kimsa Theatre for Young People í Toronto í Kanada): óskráð


Barnabækur


Barnabækur:


Sagan af bláa hnettinum, 1999, 2000, 2001: Mál og menning

Danmörk, Historien om den blå planet, 2000: Gad

Eistland, Sinise Planeedi Lugu, 2001: óskráð

Finnland, Tarina sinisestä planeetasta, 2007: Kärkölä

Frakkland, Les enfants de la planete bleue, 2003: Éditions Gallimard Jeunesse

Færeyjar, Sögan um bláa knöttinn, 2001: Föroya lærarafelag

Grikkland, 2006: Patakis

Grænland, Nunarsuarmit tungujotumit oqaluttuaq, 2002: Atuakkiorfik

Ítalía, Il pianeta blu, 2002: Fabbri editori

Japan, 2007: Gakken

Kína, 2010:

Serbía, Prica o plavoj planeti, 2002: Draganic

Spánn, La historia del planeta azul, 2001: Omega

Svíþjóð, Berättelsen om den blå planeten, 2003: Kabusa Böcker

Tæland, 2003: Image Publishing

Þýskaland, Die Geschichte vom blauen Planeten, 2007: Leiv (Leipziger Kinderbuchverlag)



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica