Höfundar
Stefán Máni
Um höfund
Stefán Máni er fæddur í Reykjavík 3. júní 1970. Hann ólst upp í Ólafsvík og bjó þar fram yfir tvítugt. Hann lauk grunnskólaprófi og hefur síðan stundað almenna verkamannavinnu og unnið þjónustustörf. Þar má telja fiskvinnslu, byggingarvinnu, smíðar, hellu- og pípulagnir, garðyrkju, næturvörslu, ræstingar, bókband, vinnu með unglingum og umönnun geðsjúkra.
Stefán Máni hefur sent frá sér níu skáldsögur, Dyrnar á Svörtufjöllum (1996), Myrkravél (1999), Hótel Kalifornía (2001), Ísrael: Saga af manni (2002), Svartur á leik (2004), Túrista (2005), Skipið (2006), Ódáðhraun (2008) og Hyldýpi, sem kom út árið 2009.
Forlag: JPV útgáfa
(fengið frá bokmenntir.is)
Skáldverk
Skáldsögur:
Skipið, 2006: JPV
Danmörk, Skibet, 2008: Gyldendal
Frakkland, Noir Océan, 2010: Gallimard
Pólland, Statek, 2010: Wydawnictwo
Svíþjóð, Skeppet, 2009: Albert Bonnier
Tékkland: Mottó
Þýskaland, Das Schiff, 2009: Ullstein
Feigð, 2011: JPV útgáfa
Hyldýpi, 2009: JPV útgáfa
Ódáðahraun, 2008: JPV
Túristi, 2005: Mál og menning
Svartur á leik, 2004: Mál og menning
Ísrael: Saga af manni, 2002: Mál og menning
Hótel Kalifornía, 2001: Forlagið
Myrkravél, 1999: Mál og menning
Dyrnar á Svörtufjöllum, 1996: Höfundur
Smásögur:
„Draugabjallan“, í At og aðrar sögur: Sextán spennandi draugasögur, 2008: Mál og menning
