Höfundar

Auður A. Ólafsdóttir

Audur_o

Um höfund


Auður A. Ólafsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1958. Hún er lektor í listfræði við Háskóla Íslands. Áður hefur hún starfað sem listfræðingur og kennari í listasögu, m.a. við Leiklistarskóla Íslands, og verið forstöðumaður Listasafns Háskóla Íslands. Hún hefur sett upp myndlistarsýningar og fjallað um myndlist og listasögulegt efni í ýmsum fjölmiðlum.

Auður hefur skrifað þrjár skáldsögur. Fyrsta bók hennar var Upphækkuð jörð sem kom út hjá Máli og menningu árið 1998, Rigning í nóvember kom síðan út hjá Sölku árið 2004 og hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar, auk þess að vera tilnefnd til Menningarverðlauna DV í bókmenntum. Afleggjarinn kom út árið 2007 og hlaut Menningarverðlaun DV í bókmenntum auk Fjöruverðlaunanna, bókmenntaverðlauna kvenna. Nýlega var bókin tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

Afleggjarinn hefur komið út í þýðingum víða í Evrópu.

Forlag: Bjartur


Frekari umfjöllun:

Höfundur mánaðarins, viðtal

Skáldverk


Skáldsögur:


Afleggjarinn, 2007: Salka

Danmörk, Stiklingen, 2009: Athene

Frakkland, Rosa candida, 2010: Zulma

Þýskaland, Weiß ich, wann es Liebe ist, 2011: Suhrkamp

 

Rigning í nóvember, 2004: Salka

Upphækkuð jörð, 1998: Mál og menning


Ljóð:


Sálmurinn um glimmer: 2010, Salka









Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica