Höfundar
Matthías Johannessen
Um höfund
Matthías Johannessen fæddist í Reykjavík 3. janúar 1930. Hann lauk Cand.-mag.-prófi í norrænum fræðum frá Háskóla Íslands árið 1955, með íslenskar bókmenntir sem aðalgrein. Hann lagði stund á almenna bókmenntasögu og leiklistarfræði í Kaupmannahöfn um tíma og rannsakaði m.a. verk Gríms Thomsen. Matthías starfaði lengst af við Morgunblaðið, fyrst sem blaðamaður frá 1951-1959 og síðan sem ritstjóri fram í ársbyrjun 2001 þegar hann lét af störfum.
Matthías hefur á löngum ritferli sent frá sér ljóðabækur, leikrit, ritgerðir, viðtalsbækur og ævisögur, þýðingar, annast útgáfur og samið formála að ýmsum ritum, auk fjölbreytts efnis í blöðum og tímaritum. Matthías er þekktur fyrir samtöl sín við kunna sem og síður þekkta einstaklinga, m.a. Halldór Laxness, Tómas Guðmundsson og Pál Ísólfsson. Árið 1958 sendi hann frá sér sína fyrstu ljóðabók, Borgin hló, sem vakti athygli fyrir frjálst stílform. Ljóð hans hafa verið þýdd á fjölda tungumála og hann hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir verk sín. Þrjár bóka hans hafa verið tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs; Tveggja bakka veður (1983), Dagur af degi (1990) og Vötn þín og vængur (1998). Hann hefur ennfremur hlotið heiðurslaun Alþingis frá 1984 og fékk Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 1999.
(fengið frá bokmenntir.is)
Skáldverk
Skáldsögur:
Hann nærist á góðum minningum, 2001: Vaka-Helgafell
Vatnaskil: Dagbókarsaga, 2002: Vaka-Helgafell
Sól á heimsenda: Saga, 1987: Almenna bókafélagið
Smásögur:
Flugnasuð í farangrinum, 1998: Vaka-Helgafell
Hvíldarlaus ferð inni í drauminn, 1995: Hörpuútgáfan
Konungur af Aragon og aðrar sögur, 1986: Almenna bókafélagið
Nítján smáþættir, 1981: Þjóðsaga
Ljóðabækur:
Þýskaland, Andblær við svanavæng = Windhauch am Schwanenflügel, 2011: Seltman+Söhne
Söknuður, 2011: Veröld
Vegur minn til þín, 2009: Háskólaútgáfan
Ljóðaúrval, 2001: Vaka-Helgafell
Ættjarðarljóð á atómöld, 1999: Vaka-Helgafell
Vötn þín og vængur, 1996: Hörpuútgáfan
Land mitt og jörð: Ljóð, 1994: Hringskuggar
Árstíðaferð um innri mann, 1992: Iðunn
Sálmar á atómöld, 1991: Almenna bókafélagið
Fuglar og annað fólk, 1991: Iðunn
Veröld þín, 1989: Iðunn
Dagur af degi, 1988: Almenna bókafélagið
Flýgur örn yfir, 1984: Skákprent
Veður ræður akri, 1981: Guðjón Ó. Guðjónsson
Tveggja bakka veður, 1981: Almenna bókafélagið
Morgunn í maí, 1978: Almenna bókafélagið
Dagur ei meir: Ljóð 74, 1975: Almenna bókafélagið
Mörg eru dags augu, 1972: Almenna bókafélagið
Vísur um vötn, 1971: Guðjón Ó. Guðjónsson
Fagur er dalur, 1966: Almenna bókafélagið
Vor úr vetri, 1963: Helgafell
Jörð úr ægi, 1961: Helgafell
Hólmgönguljóð, 1960, 1985: Helgafell/Almenna bókafélagið
Borgin hló, 1958, 1998: Helgafell
Rit almenns efnis
Undir afstæðum himni, 2000: Árvakur hf.
Við Kárahnjúka og önnur kennileiti: Helgispjall, 1999: Árvakur hf.
Gríma gamals húss: Helgispjall, 1998: Árvakur hf.
Sagnir og sögupersónur: Helgispjall, 1997: Árvakur hf.
Eintal á alneti: Helgispjall, 1996: Árvakur hf.
Spunnið um Stalín: Helgispjall, 1995: Árvakur hf.
Fjötrar okkar og takmörk, 1995: Árvakur hf.
Um Jónas, 1993: Hringskuggar
Þjóðfélagið: Helgispjall, 1992: Iðunn
Ævisaga hugmynda: Helgispjall, 1990: Iðunn
Bókmenntaþættir, 1985: Almenna bókafélagið
Félagi orð: Greinar, samtöl og ljóð, 1982: Þjóðsaga
Kjarval: Málari lands og vætta, Kjarval: A Painter of Iceland, ásamt Aðalsteini Ingólfssyni, 1981, 1991: Saga/Iceland Review
Erró, Erró: An Icelandic Artist, ásamt Braga Ásgeirssyni, 1978: Almenna bókafélagið/Iceland Review
Sverrir Haraldsson, 1977: Páll Vígkonarson/Gunnar Þorleifsson
Klofningur Sjálfstæðisflokksins gamla: Undanfari og afleiðing, 1971:
Hugleiðingar og viðtöl, 1963: Helgafell
Njála í íslenskum skáldskap, 1958: Bókmenntafélagið
Viðtalsbækur:
Vökunótt fuglsins, 1990: Almenna bókafélagið
Í kompaníi við Þórberg, 1989: Almenna bókafélagið
M samtöl, 1977-85: Almenna bókafélagið
Skeggræður gegnum tíðina, 1972: Helgafell
Bókin um Ásmund, Sculptor Ásmundur Sveinsson: An Edda in Shapes and Symbols, 1971, 1999, 1974: Helgafell/Iceland Review
Kjarvalskver, 1968, 1974, 1995: Helgafell
Í dag skein sól: Matthías Johannessen ræðir við Pál Ísólfsson, 1964: Bókfellsútgáfan
Hundaþúfan og hafið: Matthías Johannessen ræðir við Pál Ísólfsson, 1961: Bókfellsútgáfan
Svo kvað Tómas: Matthías Johannessen ræddi við skáldið, 1960: Almenna bókafélagið
Í kompaníi við allífið: Matthías Johennessen talar við Þórberg Þórðarson, 1959: Helgafell
Ferðasögur:
Ferðarispur, 1983: Almenna bókafélagið
Ævisögur og endurminningar:
Ólafur Thors: Ævi og störf, 1981: Almenna bókafélagið
Gunnlaugur Scheving, 1974: Helgafell
