Höfundar
Álfrún Gunnlaugsdóttir
Um höfund
Álfrún Gunnlaugsdóttir er fædd í Reykjavík 18. mars 1938. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1958 og hélt síðan í bókmenntafræði- og heimspekinám til Katalóníu. Hún lauk Lic. en fil. y en letras-prófi frá Universidad de Barcelona 1965 og Dr. Phil.-prófi frá Universidad Autónoma de Barcelona 1970. Hún vann að doktorsritgerð við Háskólann í Lausanne í Sviss 1966-70.
Álfrún var lektor í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands 1971-77. Hún var dósent í sömu grein 1977-87 og prófessor frá 1988 til 2006 þegar hún lét af störfum. Á haustmisseri 2002 gegndi hún einnig stöðu skorarformanns við bókmennta- og málvísindaskor heimspekideildar HÍ.
Álfrún hefur sent frá sér fimm skáldverk, fyrst smásagnasafnið Af manna völdum 1982 og síðan fjórar skáldsögur. Hún hlaut bókmenntaverðlaun DV 1985 fyrir aðra bók sína, skáldsöguna Þel. Tvisvar hafa sögur hennar verið tilnefndar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, fyrst Hringsól 1991 og síðan Hvatt að rúnum 1995. Nýjasta bók hennar, Yfir Ebrofljótið, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2001 og Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2003. Nýjasta verk hennar, Rán (2008), var tilnefnt til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2008 og fyrir þá bók hlaut hún bæði Menningarverðlaun DV og Fjöruverðlaunin. Álfrún hefur auk þess þýtt eina skáldsögu úr spænsku og skrifað greinar í fræðirit. Verk eftir hana hafa verið þýdd á erlend tungumál.
Forlag: Mál og menning
Frekari umfjöllun:
Höfundur mánaðarins.Skáldverk
Skáldsögur:
Yfir Ebrofljótið, 2001, 2003: Mál og menning
Svíþjóð, Över Ebrofloden, 2001: Mál og menning
Hvatt að rúnum, 1993: Mál og menning
Svíþjóð, Samtal i enrum, 1994: Menntamálaráðuneytið
Þýskaland, Im Vertrauen, 2003: Steidl
Hringsól, 1987: Mál og menning
Danmörk, Streijf: Roman, 1992: Gentofte
Frakkland, Errances, 1996: Caen
Svíþjóð, Irrfärd, 1990: Menntamálaráðuneytið
Rán, 2008: Mál og menning
Þel, 1984: Mál og menning
Smásögur:
Af manna völdum, 1982: Mál og menning
