Höfundar
Bjarni Bjarnason
Um höfund
Bjarni Bjarnason fæddist í Reykjavík þann 9. nóvember 1965. Hann bjó víða erlendis í æsku en hefur birt ljóð í blöðum og tímaritum á Íslandi frá unglingsaldri. Bjarni skrifaði leikrit um tvítugt sem flutt var af áhugaleikhópi. Í upphafi ársins 1989 kom út fyrsta bók Bjarna, ljóðabókin Upphafið, og síðar sama ár birtist á prenti bókin Ótal kraftaverk sem inniheldur prósaljóð. Síðan hefur hann sent frá sér fleiri ljóðabækur, smásögur og skáldsögur auk þess sem hann hefur skrifað safn einþáttunga sem ber nafnið Dagurinn í dag.
Önnur skáldsaga Bjarna, Endurkoma Maríu, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 1996 og tveimur árum síðar hlaut hann Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir skáldsöguna Borgin bak við orðin. Hann hefur hlotið verðlaun í smásagnakeppni Ríkisútvarpsins og skáldsaga hans, Mannætukonan og maður hennar vann til Bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness árið 2001. Bjarni var frumkvöðull að stofnun bókmenntatímaritsins Andblæs sem komið hefur út frá árinu 1994, en þar er birt efni eftir unga höfunda.
Forlag: Uppheimar
(fengið frá bokmenntir.is)
Skáldverk
Skáldsögur:
Endurkoma Maríu, 1996: Ormstunga
Enska, The Return of the Divine Mary, 2007: Uppheimar
Mannorð, 2011: Uppheimar
Leitin að Audrey Hepburn, 2009: Uppheimar
Bernharður Núll, 2007: Uppheimar
Andlit, 2003: Vaka-Helgafell
Mannætukonan og maður hennar, 2001: Vaka-Helgafell
Næturvörður kyrrðarinnar, 1999: Vaka-Helgafell
Borgin bak við orðin, 1998: Vaka-Helgafell
Til minningar um dauðann, 1992: Augnhvíta
Ljóð:
Urðafjóla, 1990: Augnhvíta
Ótal kraftaverk, 1989: Augnhvíta
Upphafið, 1989: Augnhvíta
Safnrit:
Vísland, 1994: Andblær
Smásögur:
„Sólarlag við sjávarrönd“, Andblær (nr. 5 haust), 1996: Andblær
„Örninn“, Andblær (nr. 1), 1994: Andblær
Rit almenns efnis
Rit almenns efnis:
Boðskort í þjóðarveislu,2009: Uppheimar
