Höfundar
Thor Vilhjálmsson
Um höfund
Thor Vilhjálmsson er fæddur í Edinborg í Skotlandi 12. ágúst 1925. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1944, nam við norrænudeild Háskóla Íslands 1944 - 1946, við Háskólann í Nottingham 1946 - 1947 og við Sorbonne háskóla í París 1947 - 1952. Hann var bókavörður á Landsbókasafni Íslands frá 1953 - 1955, starfaði við Þjóðleikhúsið 1956 - 1959 og var einnig leiðsögumaður og fararstjóri erlendis. Thor hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir rithöfunda og listamenn, hann var meðal annars í stjórn Rithöfundasambands Íslands frá 1972 - 1974 og forseti Bandalags íslenskra listamanna frá 1975 - 1981. Þá sat hann í þjóðfulltrúaráði Samfélags evrópskra rithöfunda 1962 - 1968, í framkvæmdastjórn Listahátíðar í Reykjavík 1976 - 1980 og í undirbúningsnefnd kvikmyndahátíðar 1978 og 1980. Hann var stjórnarmeðlimur Alliance Francaise árum saman. Thor er einn stofnenda Bókmenntahátíðar í Reykjavík og hefur setið í stjórn hátíðarinnar frá upphafi. Hann var formaður Júdófélags Reykjavíkur í nokkur ár og er núverandi formaður PEN-klúbbsins. Thor var einn stofnenda menningartímaritsins Birtings árið 1955 og sat í ritstjórn þess til 1968. Fyrsta verk Thors, Maðurinn er alltaf einn, kom út árið 1950 og síðan hefur hann sent frá sér fjölda verka af ýmsu tagi, meðal annars skáldsögur, smásögur, ljóð og ferðasögur auk fjölda greina og pistla um menningu og listir. Hann hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir ritstörf sín og verk hans hafa verið þýdd á fjölmörg erlend mál. Thor hefur einnig þýtt verk eftir erlenda höfunda á íslensku, meðal annars eftir Umberto Eco og André Malraux. Auk ritstarfa hefur Thor lagt stund á myndlist og haldið sýningar á þeim verkum sínum.
Thor Vilhjálmsson lést miðvikudaginn 2. mars 2011, 85 ára að aldri.
Forlag: Mál og menning.
(fengið frá bokmenntir.is)
Skáldverk
Skáldsögur:
Sveigur, 2002: Mál og Menning
Frakkland: Actes sud
Ítalía: Iperborea
Morgunþula í stráum, 1998: Mál og menning
Svíþjóð: Bra böcker
Danmörk: Borgen/Vindrose
Frakkland, Comptine matinale dans les brins d´herbe, 2001: Actes Sud
Ítalía, Cantilena mattutina nell‘erba, 2006: Iperborea
Þýskaland, Morgengebet, 2011: Osburg Verlag
Náttvíg, 1989: Mál og menning
Danmörk 1994, Isblomsterne brænder: Vindrose
Svíþjóð, Nattligt dråp, 1990: Wiken
Frakkland, 1996, Nuits a Reykjavík: Actes Sud
Grámosinn glóir, 1986, 1987: Svart á hvítu
Danmörk, 1988, Glødende mos: Vindorse
Noregur, 1988, Gråmosen gløder: Norsk Gyldendal
Finnland, 1989, Harmaassammal hehkuu: Otava
Svíþjóð, Gråmossan glöder, 1988: Wiken/Bra böcker
Þýskaland, 1990/1998, Das Graumoos glüht/Graumoos: Kleinheinrich/Paperback rights: Ullstein)
Frakkland, 1991, La mousse grise brûle: Actes Sud
Ítalía, 2002, Il muschio grigio arde: Iperborea
Tyrkland: Telos Yayinalik
England, 1995, Justice Undone: Mare‘s Nest
Búlgaría: Hemus
Litháen: Litáenn writer‘s Union Publishers
Spánn, 2007, Arde el musgo gris: Nórdica
Mánasigð, 1976: Ísafold
Svíþjóð, Månskära, 1989: Wiken
Fljótt,fljótt sagði fuglinn, 1968: Helgafell
Danmörk, 1971, Hurtigt, hurtigt, sagde fuglen: Grevas
England, 1987, Quick, quick, Said the Bird: Penumbra
Noregur, 1983, Fort fort, sa fuglen: Gyldendal
Svíþjóð, 1976, Fort fort, sa fågeln: Cavefors
Tvílýsi: myndir á sýningu, 1994: Mál og menning
Turnleikhúsið, 1979: Iðunn
Fuglaskottís, 1975: Ísafold
Folda: þrjár skýrslur, 1972: Ísafold
Óp bjöllunnar, 1970: Helgafell
Smásögur:
Andlit í spegli dropans, 1957: Helgafell
England, Faces Reflected in a Drop 1957,1966: Helgafell
Svíþjóð, Speglat i en droppe, 1961: Rabén & Sjögren
Skuggar af skýjum, 1977: Ísafold
Dagar mannsins, 1954: Heimskringla
Maðurinn er alltaf einn, 1950:
Ljóðabækur:
Stríðsmenn andans, 1997: [s.n.]
Snöggfærðar sýnir, 1995: Mál og menning
Ljóð mynd, 1982: Listasafn ASÍ
Sporrrækt, 1988: höfundur
Rit almenns efnis
Fræðibækur:
Eldur í laufi, 1991: Mál og menning
Fiskur í sjó, fugl úr beini, 1974: Ísafold
Ævisögur og endurminningar:
Fley og fagrar árar, 1996: Mál og menning
Kjarval, 1964: Helgafell
Raddir í garðinum, 1992, 1994: Mál og menning
Ferðasögur:
Hvað er San Marino?: ferðaþættir og fleira, 1973: Ísafold
Svipir dagsins og nótt, 1961: Helgafell
Regn á rykið: ferðaþættir og fleira, 1960: Helgafell
Undir gervitungli: ferðaþættir, 1959: Helgafell
