Höfundar

Kristín Svava Tómasdóttir

Kristín Svava Tómasdóttir

Um höfund


Kristín Svava Tómasdóttir er fædd árið 1985. Hún leggur stund á BA-nám í sagnfræði við Háskóla Íslands og er með diplóma í portúgölsku frá útlendingadeild Háskólans í Coimbra.

Hún hefur birt ljóð í ýmsum tímaritum og tekið þátt í ljóðaupplestrum frá árinu 2002, meðal annars í koníakskjallara, á hvalveiðibát og alls konar subbulegum krám að eigin sögn. Hún hefur tekið þátt í öllum fjórum alþjóðlegu ljóðahátíðum Nýhils og þriðju alþjóðlegu ljóðahátíð menningarsetursins Literaturhaus í Kaupmannahöfn.

Kristín Svava hefur setið í stjórn útgáfufélagsins Nýhils frá 2008. Hún gaf út ljóðabókina Blótgælur hjá Bjarti haustið 2007 og var hún valin besta ljóðabókin af bóksölum það ár. Árið 2011 kom svo út ljóðabókin Skrælingjasýningin.

Forlag: Bjartur


Skáldverk


Ljóð:


Skrælingjasýningin, 2011: Bjartur

Blótgælur, 2007: Bjartur






Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica