Höfundar

Ólafur Jóhann Ólafsson

Olafur_johann

Um höfund


Ólafur Jóhann Ólafsson fæddist 26. september 1962 í Reykjavík. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1982 hélt hann utan til frekara náms og útskrifaðist sem eðlisfræðingur frá Brandeis University í Massachusetts í Bandaríkjunum 1985. Hann hóf störf hjá Sony í Bandaríkjunum strax að loknu námi. Tíu árum síðar var hann kjörinn aðstoðarforstjóri fyrirtækisins og forstjóri margmiðlunardeildar þess. Hann átti meðal annars þátt í að þróa geisladiskinn og undir forystu hans hleypti fyrirtækið af stokkunum PlayStation leikjatölvunni. Árið 1996 hóf hann störf hjá fjárfestingarfyrirtækinu Advanta og var síðan ráðinn annar tveggja yfirmanna Time Warner Digital Media 1999. Hann tók þátt í samningaviðræðum við America Online á vegum fyrirtækisins sem leiddi af sér samruna fyrirtækjanna Time Warner, stærsta netþjónustufyrirtækis heims, og America Online, stærsta fjölmiðlunarfyrirtækis veraldar.

Á námsárunum skrifaði Ólafur Jóhann greinar um atómeðlisfræði sem birtar voru í vísindatímaritum. Fyrsta verk hans, smásagnasafnið Níu lyklar, kom út 1986 og fyrsta skáldsagan, Markaðstorg guðanna, birtist á prenti 1988. Fyrirgefning syndanna, sem út kom 1991, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna sama ár en Ólafur Jóhann hlaut síðan verðlaunin 2006 fyrir bókina Aldingarðurinn, sem er safn tengdra smásagna.

Auk skáldsagna og smásagna hefur Ólafur Jóhann sent frá sér leikritið Fjögur hjörtu sem frumsýnt var í Loftkastalanum 1997. Leikgerð Sniglaveislunnar var frumsýnd hjá Leikfélagi Akureyrar 2001 og hefur einnig verið sett á svið í Bretlandi. Verk Ólafs Jóhanns hafa verið þýdd á erlend tungumál.

Forlag: Vaka-Helgafell.

(bokmenntir.is)


Frekari umfjöllun:

Höfundur mánaðarins: Viðtal


Skáldverk


Skáldsögur:


Málvekið, 2011: Vaka Helgafell

Bandaríkin, Restoration, 2012: Ecco


Höll minninganna, 2001: Vaka-Helgafell

Bandaríkin, Walking into the Night, 2003: Random House

England, Walking into the Night, 2004: Faber and Faber

Svíþjóð, Minnenas palats, 2004: AlfabetaAnamma

Ísrael: Modan

Ítalía, Una passeggiata nella notte, 2003: Longanesi

Rússland: Azbooka

Serbía, Odlazak u noć, 2005 : RDP B92

Spánn: RBA

Tyrkland: Can Yayinlari

 

Slóð fiðrildanna, 1999: Vaka-Helgafell

Bandaríkin, The Journey Home, 2000: Pantheon (innbundin);  Vintage (kilja)

Danmörk, I sommerfuglens spor, 2002: Lindhardt & Ringhof

England, The Journey Home, 2001: Faber and Faber

Frakkland, Retour en Islande, 2000: Editions du Seuil

Holland: Nijgh & van Ditmar

Ísrael: Modan

Ítalía, Il viaggio di ritorno, 2001: Gruppo Editoriale Mauri Spagnol

Kína: Chongqing

Portúgal: Temas & Debates

Spánn, Camino a casa, 2001: RBA

Svíþjóð, Längtans resa, 2003: AlfabetaAnamma

Serbía: Samizdat B92

Þýskaland, Der Weg nach Hause, 2002: Albrecht Knaus

Kvikmyndaréttur: Hollywood

 

Fyrirgefning syndanna, 1991: Vaka-Helgafell

Danmörk, Syndsforladelse, 1996: Forum

Bandaríkin, Absolution, 1994: Pantheon

Frakkland, Absolution, 1996: Seuil

Holland, Vergiffenis, 2007: Niew Amsterdam

Noregur, Syndenes forlatelse, 1995: Gyldendal

Serbía: Samizdat B92

Þýskaland, Vergebung der Sünden, 1995, 1998: Steidl

 

Sakleysingjarnir, 2004: Vaka-Helgafell

Lávarður heims, 1996: Vaka-Helgafell

Sniglaveislan, 1994: Vaka-Helgafell

Markaðstorg guðanna, 1988: Vaka-Helgafell


Smásögur:

 

Aldingarðurinn, 2006: Vaka-Helgafell

Bandaríkin, Valentines, 2007: Pantheon Books

Serbía, Dan zaljubljenih : priče, Samizdat B92: 2008

Ísrael: Modan Publishing House

Japan: Hakusui-sha Co., Ltd.

 

Stjórnari himintunglanna og fleiri smásögur, 1996: Vaka-Helgafell

Níu lyklar, 1986: Vaka-Helgafell




Leikverk


Fjögur hjörtu, 1997: Frumsýnt í Loftkastalanum í Reykjavík 1997

Rakstur, 2003: Frumsýnt í Þjóðleikhúsinu 2003

Sniglaveislan, 2001: Leikfélag Akureyrar/Leikfélag Íslands



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica