Höfundar
Ólafur Gunnarsson
Um höfund
Ólafur Gunnarsson fæddist í Reykjavík 18. júlí 1948. Hann lauk verslunarprófi frá Verslunarskóla Íslands 1969. Ólafur stundaði verslunarstörf hjá Ásbirni Ólafssyni hf. frá 1965 til 1971 og var bifreiðastjóri læknavaktar frá 1972 til 1978. Hann hefur starfað sem rithöfundur frá 1974.
Ólafur birti ljóð á prenti áður en fyrsta skáldsaga hans, Milljón-prósent-menn, kom út 1978. Hann hefur sent frá sér skáldsögur, smásögur og skrifað barnabækur. Skáldsaga hans, Tröllakirkja var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunin 1992 og ensk þýðing hennar var einnig tilnefnd til IMPAC Dublin bókmenntaverðlaunanna 1997. Leikgerð hefur verið unnin upp úr sögunni sem frumsýnd var á stóra sviði Þjóðleikhússins 1996 og kvikmyndaréttur hennar hefur jafnframt verið seldur. Öxin og jörðin eftir Ólaf vann til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2003.
Verk eftir Ólaf hafa verið þýdd á erlend mál, meðal annars barnabókin Fallegi flughvalurinn sem var tilnefnd til Norrænu barnabókaverðlaunanna 1990. Þá hafa skáldsögur hans fyrir fullorðna komið út í enskum, þýskum og frönskum þýðingum. Ólafur hefur einnig þýtt skáldsögur og leikrit á íslensku.
Forlag: JPV útgáfa.
Skáldverk
Skáldsögur:
Öxin og jörðin, 2003, 2004: JPV-útgáfa
Litháen, Kirvis Ir Zeme, 2005: Pasvires Pasaulis
Blóðakur, 1996, 1998: Forlagið
England, Potter‘s field,1999: Mare‘s Nest
Tröllakirkja, 1992, 1993: Forlagið
England, 1996, Troll‘s cathedral: Mare‘s Nest
Þýskaland, 2004, Niemand wie ich: Steidl
Frakkland, 2007, Cathédrale des trolls: Gaïa
Tékkland: Host
Gaga, 1984, 2000: Iðunn
England, 1988, Gaga: Penumbra Press
Milljón Prósent Menn, 1978, 1991: Iðunn
England, Million percent men, 2008: JPV-útgáfa
Dimmar rósir, 2008: JPV-útgáfa
Höfuðlausn, 2005: JPV-útgáfa
Vetrarferðin, 1999, 2001: Forlagið
Sögur úr Skuggahverfinu: Tvær sögur, 1990: Forlagið
Heilagur andi og englar vítis, 1986: Forlagið
Ljóstollur, 1980: Iðunn
Smásögur:
Meistarinn og aðrar sögur, 2011: JPV útgáfa
Ljóðabækur:
Hrognkelsin: Cyclopter i Lumpi, 1977: Höfundur
Upprisan eða undan ryklokinu, 1976: Höfundur
Ljóð, 1970: HöfundurRit almenns efnis
Ferðasögur:
Úti að aka: á reykspúandi Kadilakk yfir Ameríku, 2006: JPV-útgáfa
Leikverk
Regnbogastrákurinn, 1989: Óskráð
Barnabækur
Fallegi Flughvalurinn og sagan af litla stjörnukerfinu, 1999: Forlagið
Danmörk, Den smukke flyvehval, 1989: Carlsen
Finnland, Voimakas lentovalas, 1989: Carlsen
Færeyjar, Vakri floghvalurinn, 1989: Carlsen
Norway, Den vakre flyvehvalen, 1989: Carlsen
England, The beautiful flying whale and the tale of the little galaxy, 1999: Forlagið
Fallegi flughvalurinn, 1989: Forlagið
Fallegi flughvalurinn og Leifur óheppni, 2007: JPV-útgáfa
Fallegi flughvalurinn og sagan af litla stjörnukerfinu, 1999: Forlagið
Snæljónin, 1993: Forlagið
