Höfundar
Kristín Steinsdóttir
Um höfund
Kristín Steinsdóttir fæddist á Seyðisfirði 11. mars 1946. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri hóf hún nám við Kennaraskóla Íslands og útskrifaðist sem kennari 1968. Hún kenndi við gagnfræðadeild Réttarholtsskóla í Reykjavík í þrjú ár en hélt síðan til Kaupmannahafnar þar sem hún dvaldist veturinn 1971-72 við nám í dönsku og dönskum bókmenntum við Kennaraháskólann þar í borg. Þaðan fór hún til Göttingen í Þýskalandi þar sem hún var búsett næstu sex árin, frá 1972-1978 og lagði þar stund á nám í þýsku og dönsku meðfram heimilisstörfum og barnauppeldi. Árið 1978 fluttist hún ásamt fjölskyldu sinni til Noregs en ári síðar til Íslands og bjó lengst af á Akranesi fyrir utan ársdvöl í Þrándheimi í Noregi 1998 - 1999. Á Akranesi kenndi Kristín fyrst við Brekkubæjarskóla en eftir að hún lauk B.A. prófi í dönsku og þýsku frá HÍ kenndi hún við Fjölbrautaskóla Vesturlands þar til hún sneri sér alfarið að ritstörfum árið 1988.
Kristín sat í stjórn Rithöfundasambands Íslands frá 1993 - 2001. Hún var formaður stjórnar Samtaka íslenskra barna- og unglingabókahöfunda (SÍUNG) 1999 - 2003. Kristín hefur einkum skrifað bækur fyrir börn og unglinga og þýtt barnabækur úr þýsku. Hún hefur einnig samið leikrit, bæði fyrir svið og útvarp, í samstarfi við systur sína, Iðunni Steinsdóttur rithöfund og sent frá sér tvær skáldsögur fyrir fullorðna. Hún hefur einnig skrifað kvikmyndahandrit með styrk úr Kvikmyndasjóði.
Kristín hefur hlotið margskonar verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín. Fyrsta bók hennar, Franskbrauð með sultu sem út kom 1987 hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin sama ár. Engill í vesturbænum (2002) er margverðlaunuð, hún hlaut meðal annars Barnabókaverðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur 2003 og Norrænu barnabókaverðlaunin sama ár og 2007 hlaut hún viðurkenningu úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins.
Bækur eftir Kristínu hafa verið þýddar á nokkur tungumál.
Forlag: Vaka-Helgafell.
(fengið frá bokmenntir.is)
Frekari umfjöllun:
Skáldverk
Skáldsögur:
Ljósa, 2010: Vaka-Helgafell
Þýskaland, Im Schatten des Vogels, 2011: C.H. Beck
Á eigin vegum, 2006: Vaka-Helgafell
Svíþjóð, 2007: Sin egen väg, Kabusa
Þýskaland, 2009: Eigene Wege, C.H. Beck
Sólin sest að morgni, 2004: Vaka-Helgafell
Leikverk
Leikrit:
Síldin kemur og síldin fer, 1986: Frumsýnt á Húsavík 1986
Færeyjar, Sildarok: Frumsýnt í Klakksvík 1989
Barnabækur
Barnabækur:
Engill í vesturbænum, 2002: Vaka-Helgafell
Danmörk, Englen på 2. Sal, 2007: Milik
Grænland, Illorsuyarmi inngili, 2007: Milik
Litháen, Angelas Vakaru rajone, 2006: Zara
Svíþjóð, Ängeln i trapphuset, 2006: Kabusa
Færeyjar, Eingil í vesturbýnum, 2006: Bókadeild Føroya lærarafelags
Finland, Meidän talon enkeli, 2008: Bokförlaget Idun
Eistland, Koddulinna ingel, 2009: NyNorden
Ármann og Blíða, 1994: Án útgáfu
Bandaríkin, Armann and Gentle, 1997: Suttering
Svíþjóð, Anton och Sussie, 1997: Svensk Förening for Foniatri och Logopedi
Franskbrauð með sultu, 1987, 2007: Vaka-Helgafell
Færeyjar, 1995, Sumarfrí og sildarok:
Kleinur og karrí, 1999: Vaka-Helgafell
Litháen, 2006, Spurgos ir karis: Zara
Abrakadabra, 1995: Vaka-Helgafell
Þýskaland, 1999: Abrakadabra:
Hver étur ísbirni?, 2006: Vaka-Helgafell
Danmörk, Grænland, Kiammi nanoq nerisarpaa? = Hvem spiser isbjørn?, 2008
Hetjur, 2009: Vaka-Helgafell
Rissa vill ekki fljúga, 2005: Vaka-Helgafell
Vítahringur. Helgusona saga, 2004: Vaka-Helgafell
Himmelblå öjne, 2001, frumsamin á dönsku: Kaleidoscope
Himmel, frumsamin á dönsku: Kaleidoscope
Krossgötur, 2000: Vaka-Helgafell
Ormurinn, 1998: Æskan
Vestur í bláinn, 1997: Vaka-Helgafell
Draugur í sjöunda himni, 1994: Vaka-Helgafell
Trú, 1992: Námsgagnastofnun
Draugar vilja ekki dósagos, 1992: Vaka-Helgafell
Kærleikur, 1992: Námsgagnastofnun
Von, 1992: Námsgagnastofnun
Fjólubláir dagar, 1991: Vaka-Helgafell
Ugla sat á kvisti...., 1990: Námsgagnastofnun
Átti börn og missti, 1990: Námsgagnastofnun
Og það varst þú!, 1990: Námsgagnastofnun
Eitt tvö þrjú..., 1990: Námsgagnastofnun
Stjörnur og strákapör, 1989: Vaka-Helgafell
Fallin spýta, 1988: Vaka-Helgafell
