Höfundar
Kristín Ómarsdóttir
Um höfund
Kristín Ómarsdóttir er fædd 24. september 1962 í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi frá Flensborg í Hafnarfirði 1981, stundaði nám í íslensku, almennri bókmenntafræði og spænsku við Háskóla Íslands.
Kristín hefur jöfnum höndum fengist við ljóða- og skáldsagnagerð, smásögur og leikritun. Hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín og var skáldsagan Elskan mín ég dey tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 1999, og leikrit hennar, Ástarsaga 3, var tilnefnt til Norrænu leikskáldaverðlaunanna. Árið 2005 fékk hún Grímuverðlaunin, sem leikskáld ársins, fyrir leikritið Segðu mér allt. Fyrir ljóðabókina Sjáðu fegurð þína hlaut hún Fjöruverðlaunin í flokki fagurbókmennta árið 2008.
Kristín hefur einnig unnið að myndlist, sýnt teikningar sínar, og verið í samstarfi við myndlistarfólk, m.a. Harald Jónsson, Ann Hallin og Ósk Vilhjálmsdóttur og ljósmyndarann Nönnu Bisp Büchert. Þá hefur hún unnið með myndlistarkonunni Gunnhildi Hauksdóttir að sýningarröðinni Audition, sem sýnd hefur verið í Kanada, Íslandi og á Norður Írlandi.
Bækur eftir Kristínu hafa verið þýddar á önnur tungumál og ljóð hennar hafa birst í erlendum safnritum.
Skáldverk
Skáldsögur:
Hér, 2004: Salka
Svíþjóð, Här, 2007: Kabusa Böcker
Elskan mín ég dey, 1997: Mál og menning
Svíþjóð, Älskling jag dör, 1999: Anamma
Frakkland, T´es pas la seule à être morte, 2003: Le Cavalier Bleu
Hjá brúnni, 2009: Uppheimar
Dyrnar þröngu, 1995: Mál og menning
Svartir brúðarkjólar, 1992: Mál og menning
Smásögur:
Einu sinni sögur, 1991: Mál og menning
Finnland, Olipa kerran tarinoita, 1994: Like
Hamingjan hjálpi mér I og II, 2001: Mál og menning
Svíþjóð, Gud hjälpe mig I och II, 2003: Kabusa Böcker
Í ferðalagi hjá þér. Sögubók, 1989: Mál og menning
Ljóðabækur:
Inn og út um gluggann/in and out the window, 2003: Salka
Sjáðu fegurð þína, 2008: Uppheimar
Jólaljóð, 2006: Salka
Sérstakur dagur, 2000: Mál og menning
Lokaðu augunum og hugsaðu um mig, 1998: Mál og menning
Í húsinu okkar er þoka, 1987:
Þerna á gömlu veitingahúsi, 1993: Mál og menning
Leikverk
Leikverk:
Í speglinum sefur kónguló, 2011: flutt í Ríkisútvarpinu
Kuðungarnir, 2011: frumsýnt af Þjóðleik í samstarfi við Þjóðleikhúsið
Smásögur, 2007: Flutt í Ríkisútvarpinu 2007
Segðu mér allt, 2005: Frumsýnt í Borgarleikhúsinu 2005
Spítalaskipið, 2005: Flutt í Nemendaleikhúsi Listaháskóla Íslands 2005
Afmælistertan, 2003: Flutt í Ríkisútvarpinu 2003
Vinur minn heimsendir, 2003: Sett upp í Hafnafjarðarleikhúsinu 2003
Margar konur, 2000: Flutt í Ríkisútvarpinu 2000
Margrét mikla, 1996: Flutt í Reykjavík 1996 og í Ríkisútvarpinu 1999
Hjartatrompet, 1990: Sett upp af íslenska leikhúsinu í Reykjavík 1990
Draumar á hvolfi, 1985: Sett upp í Þjóðleikhúsinu 1985
Leikgerðir:
Lísa, Lísa, 1990, 2002: Leiklistardeild Listaháskóla Íslands
