Höfundar
Kristín Marja Baldursdóttir
Um höfund
Kristín Marja Baldursdóttir fæddist 21. janúar 1949 í Hafnarfirði. Hún lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1970 og B.A. - prófi í þýsku og íslensku frá Háskóla Íslands 1991. Hún lagði stund á þýskunám við Goethe Institut í Bremen í Þýskalandi 1979-1980, sótti kennaranámskeið í Danmörku 1985 - 1986 og blaðamannanámskeið í Þýskalandi 1992. Hún kenndi við grunnskóla Reykjavíkur á árunum 1975 – 1988. Árið 1988 skipti hún um starfsvettvang og hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu þar sem hún starfaði til ársins 1995.
Fyrsta skáldsaga Kristínar Marju, Mávahlátur, kom út 1995. Eftir henni hefur verið unnin leikgerð sem sett var upp hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1998. Samnefnd kvikmynd Ágústar Guðmundssonar byggð á sögu Kristínar var frumsýnd í Reykjavík haustið 2001 og hlaut fjölda verðlauna á Eddu-hátíðinni sama ár (Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunin). Kristín Marja hefur síðan sent frá sér fleiri skáldsögur, smásagnasafn og skrifað ævisögu Vilborgar Dagbjartsdóttur skáldkonu, Mynd af konu, sem út kom 2001.
Forlag: Mál og menning.
(fengið frá bokmenntir.is)
Frekari umfjöllun:
Skáldverk
Skáldsögur:
Karlsvagninn, 2009: Mál og menning
Þýskaland, Sterneneis, 2011: Krüger Verlag
Óreiða á striga, 2007: Mál og menning
Danmörk, Karitas - Kaos på lærred, 2008:Gyldendal
Þýskaland, Die Farben der Insel, 2009: S. Fischer
Karítas án titils, 2004: Mál og menning
Þýskaland, Die Eismalerin, 2006: Krüger/Fischer
Holland, Mistsluier, 2006: Signature
Danmörk, Karitas uden titel, 2007: Gyldendal
Frakkland, Karitas, sans titre, 2008: Gaïa
Svíþjóð, Karitas utan titel, 2006: Bra Böcker
Kular af degi, 1999: Mál og menning
Þýskaland, Kühl graut der Morgen, 2002: Taschenbuch Verlag
Hús úr húsi, 1997: Mál og menning
Svíþjóð: Bra böcker
Danmörk: Gyldendal
Frakkland: Gaja
Þýskaland, Hinter fremden Türen, 2004: Fischer Taschenbuch Verlag
Mávahlátur, 1995: Mál og menning
Þýskaland, Mövengelächter, 2001: Kruger/Fisher
Danmörk, Mågelatter, 2003: PP-forlag
Holland, De lach van de meeuw, 2004: Signature
Svíþjóð, Måsarnas skratt, 2005: Bra Böcker
Noregur, Måkelatter, 2006: Pantagruel
Kvikmyndaréttur seldur Ísfilm
Smásögur:
Kvöldljósin eru kveikt, 2001: Mál og menning
"Hornherbergi" (Í Brúin út í Viðey, s. 65-75.), 2000: Miðgarður
Rit almenns efnis
Ævisögur:
Mynd af konu: Vilborg Dagbjartsdóttir, 2000: Salka
Leikverk
Leikgerðir:
Mávahlátur, 1998: Leikfélag Reykjavíkur
