Höfundar
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Um höfund
Kristín Helga Gunnarsdóttir fæddist 24. nóvember 1963 í Reykjavík. Eftir stúdentspróf stundaði hún nám við Háskólann í Barcelona og lauk síðan B.A. prófi í spænsku og fjölmiðlafræði frá University of Utah í Salt Lake City 1987. Hún tók próf frá Leiðsögumannaskóla Íslands árið 1994. Kristín Helga hefur starfað sem leiðsögumaður og fararstjóri, verið flugfreyja hjá Flugleiðum og hún var fréttamaður hjá Stöð 2 og Bylgjunni 1987-1998. Frá 1998 hefur hún einbeitt sér að skrifum og blaðamennsku.
Fyrsta bók Kristínar Helgu, Elsku besta Binna mín, kom út árið 1997 og síðan hefur hún gefið út fleiri barnabækur. Hún hlaut Barnabókaverðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur árið 2001 fyrir bókina Mói hrekkjusvín og hefur síðan hlotið fleiri viðurkenningar fyrir verk sín, m.a. Bókaverðlaun barnanna ítrekað og nú síðast Vestnorrænu barnabókaverðlaunin fyrir skáldsöguna Draugaslóð 2008.
Forlag: Mál og menning.
(fengið frá bokmenntir.is)
Frekari umfjöllun:
Höfundur mánaðarinsBarnabækur
Mói hrekkjusvín, 2000: Mál og menning
Þýskaland, Moi : Bengel aus der Silberstrass, 2011: Mückenschwen VerlagKeikó: hvalur í heimsreisu, 1998: Vöxtur
Ísland, Keiko Home at Last, 1998: Vöxtur
Ríólítreglan, 2011:
Fíasól og litla ljónaránið, 2010: Mál og menning
Fíasól er flottust, 2008: Mál og menning
Draugaslóð, 2007: Mál og menning
Ferðabók Fíusólar, 2006: Mál og menning
Fíasól á flandri, 2006: Mál og menning
Fíasól í hosiló, 2005: Mál og menning
Fíasól í fínum málum, 2004: Mál og menning
Strandanornir, 2003, 2004: Mál og menning
Gallsteinar afa Gissa, 2002: Mál og menning
Í Mánaljósi: ævintýri Silfurbergþríburanna, 2001: Mál og menning
Bíttu á jaxlinn Binna mín, 1998: Mál og menning
Milljón steinar og Hrollur í dalnum, 1999: Mál og menning
Elsku besta Binna mín, 1997, 2000: Mál og menning
