Höfundar

Sveinbjörn I. Baldvinsson

Sveinbjörn I. Baldvinsson

Um höfund


Sveinbjörn I. Baldvinsson er fæddur í Reykjavík árið 1957. Hann hefur haft ritstörf sem aðalstarf frá 1980. Hann skrifaði um bókmenntir og jazz í Morgunblaðið 1978 til 1982; var þáttagerðarmaður í sjónvarpi 1982-1985: hann var dagskrárstjóri innlendrar dagskrárdeildar Sjónvarps 1993-96. Sveinbjörn kenndi auk þess leikritun og handritsgerð við Kvikmyndaskóla Íslands 1992, 1997 og 1998.

Sveinbjörn hefur skrifað leikrit, gefið út ljóðabækur, smásögur og barnabækur og starfað við þýðingar. Fyrsta bók hans er ljóðabókin Í skugga mannsins sem kom út árið 1976 en ljóðabækur hans eru sex talsins auk þess sem ljóð eftir hann hafa birst víða í safnritum, íslenskum og erlendum, og tímaritum. Af þýðingum Sveinbjarnar má nefna Sláturhús 5 eftir Kurt Vonnegut sem kom út árið 1982.

Útgefandi: Mál og menning


Skáldverk


Ljóð:


Stofa kraftaverkanna, 1998: Mál og menning

Ljóð handa hinum og þessum, 1991: Almenna bókafélagið

Felustaður tímans, 1991: Iðunn

Lífdagatal, 1984: Almenna bókafélagið

Í skugga mannsins, 1976: Almenna bókafélagið

 

Smásögur:

Stórir brúnir vængir, 1989: Almenna bókafélagið



Leikverk


Kvikmyndahandrit:


Sporlaust, leikstj. Hilmar Oddsson (1998)

Tár úr steini, leikstj. Hilmar Oddsson (1995)

Foxtrot, leikstj. Jón Tryggvason (1988)


Sjónvarpsverk/stuttmyndir:


Taxa, Leiknir framhaldsþættir, DR-TV Drama, (danska sjónvarpið), þáttahöfundur (1997-98)

Blöðruveldið, (með Sigurði Valgeirssyni), 3 þættir (1998)

Laggó, (með Jóni Tryggvasyni), sjónvarpsmynd, 1995

Þetta verður allt í lagi, sjónvarpsmynd, 1984

Icemaster, suttmynd eftir smásögu undirritaðs, handrit & leikstjórn: Gísli Snær Erlingsson.

 

Barnaefni í sjónvarpi (með Sigurði Valgeirssyni):


Á baðkari til Betlehem, jóladagatal, 24 þættir (1990)

Vilhjálmur og Karítas, 12 þættir (1986-87)

Sævar Örn og Sólgleraugnahundurinn, 4 þættir (1988)

 

Leikrit:


Þétting (Leikfélag Reykjavíkur, 1991-92)

 

Leikrit á ensku:


Unstable Conditions, tveir einþáttungar; The Stars Of Caesar og Visiting Hour (Century City Playhouse, Los Angeles, 1989-90)

Visiting Hour (USC Playwrights Guild Festival, Los Angeles, 1988)

Shooting Dreams (Green Room Theater, Los Angeles, 1988)


Barnabækur


Barnabækur:


Á baðkari til Betlehem (ásamt Sigurði G. Valgeirssyni og Brian Pilkington), 1990: Almenna bókafélagið

Tár úr steini, 1989: Mál og menning



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica