Höfundar
Jón Kalman Stefánsson
Um höfund
Jón Kalman Stefánsson fæddist í Reykjavík 17. desember 1963. Hann bjó í borginni til 12 ára aldurs en flutti þá til Keflavíkur og bjó þar til ársins 1986; þá lá leiðin aftur til Reykjavíkur, með stúdentspróf úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja upp á vasann. Frá 1975 til 1982 var hann með annan fótinn vestur í Dölum, vann meðal annars í sláturhúsinu í Búðardal og frá 1979 til 1982 stundaði hann ýmis störf, vann við saltfisk og skreið, múrverk og var eitt sumar lögreglumaður á Keflavíkurflugvelli. Jón Kalman nam bókmenntir við Háskóla Íslands frá haustmánuðum 1986 og með hléum til 1991 en lauk ekki prófi. Hann kenndi bókmenntir í eitt ár við Fjölbrautaskóla vesturlands á Akranesi, hálft ár við Fjölbrautaskóla Suðurnesja, skrifaði jafnframt greinar fyrir Morgunblaðið, ritdæmdi þar bækur í nokkur ár. Jón bjó í Kaupmannahöfn 1992 til 1995, las, skúraði, taldi strætisvagna. Hann starfaði sem bókavörður við Héraðsbókasafnið í Mosfellsbæ fram til vorsins 2000. Síðan þá hefur hann starfað sem rithöfundur.
Fyrsta bók hans, ljóðabókin Með byssuleyfi á eilífðina, kom út árið 1988. Síðan hefur hann sent frá sér fleiri ljóðabækur og skáldsögur. Þrjár af bókum Jóns Kalmans hafa verið tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, 2001, 2004 og 2007. Hann hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2005 fyrir skáldsöguna Sumarljós, og svo kom nóttin.
Forlag: Bjartur.
(fengið frá bokmenntir.is)
Frekari umfjöllun:
Bók mánaðarins: Himnaríki og helvíti
Skáldverk
Skáldsögur:
Harmur englanna, 2009: Bjartur
Þýskaland, Der Schmerz der Engel, 2011: Piper
Frakkland, La tristesse des anges, 2011: Gallimard
Holland, Het verdriet van de engelen, 2012: Anthos
Noregur, Englenes sorg, 2011: Press
Svíþjóð, Änglarnas sorg, 2011: Weyler
Himnaríki og helvíti, 2007: Bjartur
Danmörk, Himmerige og helvede, 2010: Batzer at Batzer & Co.
England, Heaven and Hell, 2010: Maclehose
Frakkland, Entre ciel et terre, 2010: Gallimard
Holland, Hemel en hel, 2010: Anthos
Ítalía, Paradiso e inferno, 2011: Iperborea
Noregur, Himmelrike og helvete, 2010: Press
Pólland, Niebo i piekło, 2011: Iperborea
Svíþjóð, Himmel och helvete, 2010: Svante Weyler Bokförlag
Þýskaland, Himmel und Hölle, 2009: Reclam Verlag
Snarkið í stjörnunum, 2003: Bjartur
Þýskaland, Das Knistern in den Sternen, 2005: Reclam
Ýmislegt um risafurur og tímann, 2001: Bjartur
Þýskaland, Verschiedenes über Riesenkiefern und die Zeit, 2006: Reclam
Birtan á fjöllunum, 1999: Bjartur
Þýskaland, Das Licht auf den Bergen, 2003: Lübbe
Sumarið bakvið brekkuna, 1997: Bjartur
Þýskaland, Der Sommer hinter dem Hügel, 2001: Lübbe
Skurðir í rigningu, 1996: Bjartur
Þýskaland, Der Sommer hinter dem Hügel, 2003: Lübbe
Sumarljós, og svo kemur nóttin: sögur og útúrdúrar, 2005, 2006: Bjartur
Svíþjóð, Sommarljus och sen kommer natten, 2008: Svante Weyler
Hjarta mannsins, 2011: Bjartur
Ljóðabækur:
Hún spurði hvað ég tæki með mér á eyðieyju, 1993: Forlagið
Úr þotuhreyflum guða, 1989: Höfundur
Með byssuleyfi á eilífðina, 1988: Höfundur
Leikverk
Sumarljós (byggt á Sumarljós, og svo kemur nóttin: sögur og útúrdúrar): sýnt í Þjóðleikhúsinu 2008
