Höfundar
Hallgrímur Helgason
Um höfund
Hallgrímur Helgason fæddist þann 18. febrúar 1959 í Reykjavík. Hann nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands veturinn 1979-80 og Listaakademíuna í München 1981-82. Frá árinu 1982 hefur hann starfað sjálfstætt sem myndlistarmaður og rithöfundur.
Fyrsta skáldsaga hans, Hella, kom út árið 1990 og síðan hefur hann sent frá sér fleiri skáldsögur og ljóðabók. Skáldsaga hans, 101 Reykjavík, vakti verulega athygli þegar hún kom út árið 1996 og var hún tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 1999. Samnefnd kvikmynd Baltasar Kormáks byggð á bókinni var frumsýnd árið 2000 og hefur hún vakið athygli víða um lönd. Hallgrímur hefur einnig skrifað verk fyrir leikhús, auk fjölda blaðagreina um samfélags- og menningarmál, flutt pistla í útvarpi og komið fram sem grínstæðingur. 101 Reykjavík hefur komið út í þýðingum á Norðurlöndunum og víðar. Hallgrímur hefur haldið yfir 20 einkasýningar hér heima, í Boston, New York, París og Malmö og verk hans hafa verið sýnd á yfir 30 samsýningum í ýmsum löndum. Hallgrímur Helgason býr og starfar í Reykjavík.
Forlag: Mál og menning.
Frekari umfjöllun:
Skáldverk
Skáldsögur:
Konan við 1000°, 2011: JPV
Þýskaland, Eine Frau bei 1000°, 2011: Klett-Cotta
10 ráð til að hætta að drepa og byrja að vaska upp, 2008: JPV útgáfa
Bandaríkin/England, The Hitman's Guide to Housecleaning, 2012: AmazonCrossing
Danmörk, Lejemorderens guide til et smukt hjem, 2009: Lindhardt og Ringhof
Holland, Schoonmaaktips van een huurmoordenaar, 2009: Meulenhof
Ítalía, Toxic, 2010: Isbn Edizioni
Noregur, Håndbok i husstell til leiemordere, 2010: Cappelen Damm
Pólland, Poradnik domowy kilera : jak przestac sprzatac ludzi i wziac sie za zmywanie, 2010: Slowo
Tékkland, 10 rad nájemného vraha, jak vycistit kvartýr, 2011: Plus
Þýskaland, Zehn Tipps, das Morden zu beenden und mit dem Abwasch zu beginnen, 2010: Klett-Cotta [Kiljuútgáfa, 2011: dtv]
Rokland, 2005: Mál og menning
Danmörk, Stormland, 2007: Aschehoug Dansk Forlag
Noregur, Stormland, 2009: Cappelen Damm
Svíþjóð, Stormland, 2009: Norstedts
Þýskaland, Rokland, 2006: Klett-Cotta
Kvikmyndaréttur seldur Pegasus
Herra Alheimur, 2003: Mál og menning
Ítalía: Longanesi
Höfundur Íslands, 2001: Mál og mennings
Danmörk, Islands forfatter, 2006,: Rosinante
Finnland, Islannin kirjailija, 2005: Otava
Ítalía, Il piu´ grande scrittore d´Islanda, 2003: Longanesi/Ugo Guanda
Noregur, Islands forfatter, 2006: N.W. Damm & Sön
Svíþjóð: Norstedts
Þýskaland, Vom zweifelhaften Vergnügen, tot zu sein, 2005: Klett-Cota
101 Reykjavik, 1996: Mál og menning
BNA, 101 Reykjavik: Simon & Schuster
Danmörk, 101 Reykjavik, 2001: Rosinante
England, 101 Reykjavik, 2002: Faber & Faber
Finnland, 101 Reykjavik, 2000: Otava
Frakkland, 101 Reykjavik, 2002: Actes Sud
Holland, 101 Reykjavik, 2002: Meulenhoff
Ítalía, 101 Reykjavik, 2001: Longanesi
Kórea: Dulnyuk
Lettland, 101 Reikjavika, 2007: Valters un Rapa
Noregur, 101 Reykjavik, 2003: N.W.Damm & Sön
Pólland, 101 Reykjavik, 2001: Swiat Literacki/as an e-book; Tower Press
Rúmenía: Universal Dalsi
Rússland: Azbooka
Spánn, 101 Reykjavik: Rinoceronte Editora, in Galician
Spánn/Mexíkó/Argentína/Úrúguay/Kólumbía, 101 Reykjavik, 2001: RBA
Svíþjóð, 101 Reykjavik, 2000: Norstedts
Þýskaland, 101 Reykjavik, 2002: Klett-Cotta
Þetta er allt að koma, 1994: Mál og menning
Hella, 1990: Mál og menning
Ljóð:
Ljóðmæli 1978-1998, 1998: Mál og menning
Leikverk
Leikverk:
Rúm fyrir einn, 2001: frumsýnt í Iðnó 2001
Wake me up before you go go: söngleikur byggður á lögum frá níunda áratugnum, 2001: Nemendafélag Verslunarskóla Íslands
Skáldanótt, 2000: Leikfélag Reykjavíkur
1000 eyja sósa: eintalsþáttur, 1999: frumsýnt í Iðnó, 1999
Kossinn: gamanleikur með rómantísku ívafi, 1999: frumsýnt í Bíóleikhúsinu 1999
Óbreyttur maður: eintalsþáttur, 1989: frumsýnt í Leiklistarskólanum 1989
Kvikmyndir:
101 Reykjavík, 2000. Leikstjóri: Baltasar Kormákur
Barnabækur
Barnabækur:
Konan sem kyssti of mikið, 2009: JPV
