Höfundar
Gyrðir Elíasson
Um höfund
Gyrðir Elíasson fæddist í Reykjavík þann 4. apríl 1961. Hann er Austfirðingur að ætt og uppruna en ólst upp á Sauðárkróki og gekk þar í grunn- og framhaldsskóla. Hann bjó um nokkurt skeið vestanlands, í Borgarnesi og á Akranesi, en seinna í Reykjavík.
Gyrðir hefur nánast alla sína fullorðinsævi unnið við ritstörf, hann hefur sent frá sér fjölda verka af ýmsu tagi; ljóðabækur, skáldsögur og sagnasöfn. Fyrsta útgefna bók hans er ljóðabókin Svarthvít axlabönd frá árinu 1983. Hann er einnig ötull þýðandi, meðal annars bóka um og eftir ameríska frumbyggja, og hefur þýtt fjórar af skáldsögum bandaríska rithöfundarins Richards Brautigan. Árið 2011 sendi Gyrðir frá sér veglegt safn ljóðaþýðinga, Tunglið braust inn í húsið, en þar er að finna ljóð eftir 36 skáld frá fimmtán löndum.
Gyrðir hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir verk sín, til að mynda Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2000 fyrir smásagnasafnið Gula húsið og Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2011 fyrir sagnasafnið Milli trjánna.
Forlag: Uppheimar
(www.bokmenntir.is)Frekari umfjöllun:
Skáldverk
Skáldsögur:
Gangandi íkorni,1987: Mál og Menning
Þýskaland, Ein Eichhörnchen auf Wanderschaft, 2011. Walde+Graf
Sandárbókin Pastoralsónata, 2007: Uppheimar
Þýskaland, Sandflussbuch, Herbst 2011: Walde+Graf
Svefnhjólið, 1990: Mál og Menning
Danmörk, Søvncyclen, 1995: Rosinante
Svíþjóð, Sömnhojen, 1993: Bonniers
Norway, Søvnhjulet, 1993: Oktober
Þýskaland, Das Schlafrad, 1996: Suhrkamp
Gangandi íkorni, 1987 og Næturluktin, 2001, gefið út í einu bindi árið 2006: Mál og Menning
Næturluktin, 2001: Mál og Menning
Smásögur:
Steintré, 2005: Mál og Menning
England, Stone Tree, 2008: Comma
Gula húsið, 2000: Mál og menning
Danmörk, Det gule hus, 2000: Mál og menning
Vatnsfólkið, 1997: Mál og Menning
England, The water people, 2007: Comma Press
Tregahornið, 1993, 2001: Mál og Menning
Þýskaland, Das Blueshorn, 2000: Kleinheinrich
Heykvísl og gúmmískór, 1991: Mál og Menning
Þýskaland, Heugabel und Gummischue, 1997:
Bréfbátarigningin, 1988, 1991: Mál og menning
Danmörk, 1991, Papirskibsregnen: Rosinante
Þýskaland, 1996, Papierbooteregen: Kleinheinrich
Milli trjánna, 2009: Uppheimar
Trésmíði í eilifðinni og fleiri sögur, 1998: Mál og Menning
Kvöld í ljósturninum, 1995: Mál og Menning
Ljóðabækur:
Nokkur almenn orð um kulnun sólar, 2009: Uppheimar
Þýskaland, Einige allgemeine Worte über die Erkaltung der Sonne, 2011: Kleinheinrich
Upplitað myrkur, 2005: Mál og menning
Tvífundnaland, 2003: Mál og menning
Hugarfjallið, 1999: Mál og menning
Indíánasumar, 1996: Mál og menning
Mold í skuggadal, 1992: Mál og menning
Vetraráform um sumarferðalag, 1991: Mál og menning
Tvö tungl, 1989: Mál og menning
Haugrof, 1987: Mál og menning
Blindfugl/svartfugl, 1986: Norðan niður
Bak við maríuglerið, 1985
Einskonar höfuð lausn, 1985: Mál og menning
Tvíbreitt (svig)rúm eða Póesíbók númer eitt komma tvö, 1984: Mál og menning
Svarthvít axlabönd, 1983: GM Forlag
Rit almenns efnis
Rit almenns efnis:
Undir leslampa, 2000: Bjartur
