Höfundar

Gerður Kristný

gerdur_kristny

Um höfund


Gerður Kristný (Guðjónsdóttir) fæddist í Reykjavík 10. júní 1970. Hún ólst upp í Háaleitishverfinu, gekk í Álftamýrarskóla og fór síðan í Menntaskólann við Hamrahlíð. Hún lauk B.A. prófi í frönsku með almenna bókmenntafræði sem aukafag frá Háskóla Íslands í febrúar 1992. Lokaritgerðin fjallaði um fegurðina í Les fleurs du mal eftir franska skáldið Baudelaire. Veturinn 1992 - 1993 stundaði Gerður nám í hagnýtri fjölmiðlun við Háskóla Íslands og starfsþjálfun hjá sjónvarpsstöð Danmarks Radio fylgdi í kjölfarið. Hún var ritstjóri tímaritsins Mannlífs á árunum 1998 til 2004 en er nú rithöfundur í fullu starfi.

Gerður hefur hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar, meðal annars fyrstu verðlaun í ljóðasamkeppni Litrófs í Sjónvarpinu árið 1992, Bókaverðlaun barnanna árið 2003 fyrir Mörtu Smörtu, Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness 2004 fyrir skáldsöguna Bátur með segli og allt og Blaðamannaverðlaun Íslands fyrir Myndina af pabba – Sögu Thelmu árið 2005. Árið 2007 var ljóðabók Gerðar, Höggstaður, tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Gerður hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2010 fyrir ljóðabókina Blóðhófnir.

Ljóð og smásögur Gerðar hafa birst í kennslubókum fyrir grunn- og framhaldsskóla, auk þess sem ljóð hennar og smásögur eru í ýmsum safnritum og tímaritum, bæði íslenskum sem erlendum.


Forlag: Mál og menning.

(fengið frá bokmenntir.is)


Frekari umfjöllun:

Höfundur mánaðarins, viðtal

Skáldverk


Skáldsögur:


Bátur með segli og allt, 2004: Mál og menning

Regnbogi í póstinum, 1996: Mál og menning


Smásögur:


Eitruð epli, 1998: Mál og menning


Ljóð:


Blóðhófnir, 2010: Mál og menning

Danmörk, Blodhingst, 2011: Forlaget Vandkunsten


Höggstaður, 2007: Mál og menning

Ísfrétt, 1994: Mál og menning

Launkofi, 2000: Mál og menning


Rit almenns efnis


Ævisögur:


Myndin af pabba: Saga Thelmu, 2005: Vaka-Helgafell

Svíþjóð, Bilden av pappa, 2006, 2008: Bra böcker


Ferðasögur:


Ég veit þú kemur. Þjóðhátíð í Eyjum 2002, 2002: Mál og menning



Leikverk


Bannað að blóta í brúðarkjól, 2000: Einleikur fluttur í Kaffileikhúsinu árið 2000

Í kolli mínum geymi ég gullið (sjónvarpshandrit), 1993 (ásamt Björgu Björnsdóttur og Guðmundi Sverrissyni): Námsgagnastofnun


Barnabækur


Garðurinn, 2008: Mál og menning

Þýskaland, Die letzte Nacht des Jahres, 2011: Berlin Verlag

 

Prinsessan á Bessastöðum, 2009: Mál og menning

Ballið á Bessastöðum, 2007: Mál og menning

Vinir Afríku, 2007: Námsgagnastofnun

Land hinna týndu sokka, 2006: Mál og menning

Jóladýrin, 2004: Mál og menning

Marta smarta, 2002: Mál og menning




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica