Höfundar
Sigrún Davíðsdóttir
Um höfund
Sigrún Davíðsdóttir er fædd í Reykjavík 1955. Eftir nám í íslenskum bókmenntum stundaði hún menntaskóla- og háskólakennslu.
Fyrsta bók hennar var matreiðslubók sem út kom 1978 og fleiri fylgdu í kjölfarið. Fyrir barnabókina Silfur Egils hlaut hún barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar 1989.
Sigrún rannsakaði um árabil sögu handritamálsins í Danmörku og skrifaði bók um það efni sem út kom á dönsku. Frá árinu 2000 hefur hún verið búsett í London og starfað þar fyrir íslenska og erlenda fjölmiðla.
Fyrsta skáldsaga hennar, Feimnismál, kom út haustið 2006.
Forlag: Uppheimar
Skáldverk
Skáldsögur:
Samhengi hlutanna, 2011: Mál og menning
Feimnismál, 2006: Mál og menning
Rit almenns efnis
Matreiðslubækur:
Pottarím, 1987: Íslenski kiljuklúbburinn
Brjóstagjöf og barnamatur, 1982: Almenna bókafélagið [2. útg. 1992]
Matur: Sumar, vetur, vor og haust, 1980: Almenna bókafélagið
Matreiðslubók handa ungu fólki á öllum aldri, 1978: Almenna bókafélagið
Fræðibækur:
Håndskriftsagens saga – i politisk belysning, 1999: Odense Universitet
Barnabækur
Barnabækur:
Silfur Egils, 1989: Almenna bókafélagið
