Höfundar

Friðrik Erlingsson

fridrik

Um höfund


Friðrik Erlingsson fæddist þann 4. mars 1962 í Reykjavík. Hann útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá Mynd- og handíðaskóla Íslands 1983. Síðan hefur hann unnið við skriftir og á auglýsingastofu. Friðrik hefur samið og þýtt fjölda söngtexta, skrifað handrit að kvikmyndum og sjónvarpsefni, ævisögur og skáldrit fyrir alla aldurshópa. Skáldsagan Benjamín dúfa (1992) sem fjallar um hóp ungra drengja í Reykjavík á síðari hluta 20. aldar, hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verið þýdd á fimm mál. Kvikmynd byggð á sögunni í leikstjórn Gísla Snæs Erlingssonar hefur fengið lof víða um heim. Friðrik skrifaði handritið að teiknimyndinni Litla lirfan ljóta sem frumsýnd var í Reykjavík í ágúst 2002. Hann hlaut Barnabókaverðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur 2002 fyrir þýðingu sína á bók Monu Nilsson-Brannstrom Tsatsiki og mútta.

(fengið frá bokmenntir.is)


Skáldverk


Skáldsögur:


Góða ferð, Sveinn Ólafsson, 1998: Iðunn

Svíþjóð, 2002, Lycklig resa: Bonnier Carlsen

England, Fish in the Sky: Meadowside Children's books

 

Bróðir Lúsifer, 2000: Iðunn

Vetrareldur, 1995: Vaka-Helgafell


Rit almenns efnis


Alltaf til í slaginn: Lífssigling skipstjórans Sigurðar Þorsteinssonar, 1992: Vaka-Helgafell

Lífskraftur: Séra Pétur og Inga í Laufási, 1996: Vaka-Helgafell


Leikverk


Kvikmyndahandrit:


Litla lirfan ljóta, 2002: CAOZ

Benjamín dúfa, 1996:

Stuttur frakki, 1994: Óskráð


Barnabækur


Benjamín dúfa, 1992, 1995: Vaka-Helgafell

Ítalía, 2003, I Cavalieri del Drago rosso: Mondadori

Svíþjóð, Benjamin duva: BonnierCarlsen

Færeyjar, 1997, Benjamín dugva: Bókadeildin

Danmörk, 1997, Benjamin due: Sesam

Finnland, Ritari Benjamin kyykinen: Otava

Litháen: Gimtasis Zodis

England, Benjamin Dove: Meadowside

Bandaríkin: Benjamin Dove: North&South

Kórea: Nangiyala

Slóvenía: Zalozba Grlica

 

Þór: Leyndarmál guðanna, 2010: Veröld

Þór í heljargreipum, 2008: Veröld

Litla lirfan ljóta, 2002: CAOZ

Annað sumar hjá afa, 1993: Námsgagnastofnun

Afi minn í sveitinni, 1988: Námsgagnastofnun




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica