Höfundar
Einar Kárason
Um höfund
Einar Kárason fæddist 24. nóvember 1955 í Reykjavík. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Tjörnina árið 1975 lagði hann stund á nám í almennri bókmenntasögu við Háskóla Íslands til 1978. Hann vann við ýmis störf meðfram námi til ársins 1978 en frá þeim tíma hefur hann verið rithöfundur að aðalstarfi.
Einar átti sæti í stjórn Rithöfundasambands Íslands á árunum 1984-1986, gegndi stöðu varaformanns 1986-1988 og stöðu formanns á árunum 1988-1992. Hann sat sem formaður Rithöfundasambands Íslands í stjórnum Bandalags íslenskra listamanna, Bókasambands Íslands, Fjölíss og IHM. Hann hefur átt sæti í stjórn Bókmenntahátíðar í Reykjavík frá 1985.
Einar tók að birta ljóð í tímaritum á árunum 1978-1980 en fyrsta skáldsaga hans, Þetta eru asnar Guðjón, kom út 1981. Tveimur árum síðar kom svo út fyrsta bókin í trílógíunni um lífið í einu af braggahverfum Reykjavíkur á eftirstríðsárunum, Þar sem djöflaeyjan rís. Hann hlaut Menningarverðlaun DV fyrir þá næstu, Gulleyjuna, 1986 en bókin var einnig tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs ári síðar. Fyrirheitna landið var síðan tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 1989. Leikrit byggt á bókunum var sett upp af Leikfélagi Reykjavíkur og sýnt við miklar vinsældir. Einar skrifaði jafnframt kvikmyndahandrit upp úr bókunum í samvinnu við Friðrik Þór Friðriksson leikstjóra og var kvikmynd hans, Djöflaeyjan, frumsýnd 1996. Einar og Friðrik höfðu áður unnið saman að handriti kvikmyndarinnar Skytturnar sem frumsýnd var 1987. Auk fjölda skáldsagna hefur Einar sent frá sér ljóðabók, smásagnasöfn og bækur fyrir börn, fyrsta barnabók hans, Didda dojojong og Dúi dúgnaskítur kom út 1993. Skáldsögur hans hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál.
Forlag: Mál og menning.
(fengið frá bokmenntir.is)
Skáldverk
Skáldsögur:
Killiansfólkið, 2004: Mál og menning
Svíþjóð: Bonniers
Norway: Aschehoug
Danmörk: Gyldendal
Finnland: Like
France: Seuil
Þýskaland: Zsolnay/Hanser, paperback rights: btb
Stormur, 2003: Mál og menning
Noregur, Stormur, 2005: Cappelen
Danmörk, Storm, 2005: Gyldendal
Þýskaland, Sturmeprobt, 2007: Random House
Rússland: Fluid
Óvinafagnaður, 2001: Mál og menning
Danmörk, Fjendemøde, 2005: Gyldendal
Finnland: Johnny Kniga/WSOY
Þýskaland, Feindesland, 2004, 2007: Random House
Finnland, Miekkakäräjät, 2003: Johny Kniga kustannus
Kvikmyndaréttur seldur til: Icelandic Film Corporation; leikstjóri Friðrik Þór Friðriksson
Norðurljós, 1998: Mál og menning
Finnland, Revontulet, 2000: Like
Noregur, Nordlys, 2000: Aschehoug
Kvikasilfur, 1994: Mál og menning
Danmörk, Kviksølv, 1997: Gyldendal
Noregur, Kvikksølv, 1998: Aschehoug
Svíþjóð, Kvicksilver, 1994: Mál og menning
Þýskaland, Die Isländische Mafia, 2001: Zsolnay
Þýskaland, Die Isländische Mafia, 2003: Btb
Heimskra manna ráð, 1992: Mál og menning
Danmörk, Tåbers visdom, 1996: Gyldendal
Finnland, Tyhmyreiden neuvot, 1997: Like
Frakkland, La sagesse des fous, 2000: Seuil
Noregur, Dumme manns gode råd, 1996: Aschehoug
Þýskaland, Törichter Männer Rat, 1998: Zsolnay
Fyrirheitna landið, 1989: Mál og menning
Danmörk, Lykkens land: roman, 1991: Gyldendal
Finnland, Luvattu maa, 1992: Like
Þýskaland, Das Gelobte Land, 1999: Goldmann
Gulleyjan, 1985: Mál og menning
Danmörk, Guldøen, 1990: Gyldendal
Finnland, Kultasaari, 1991: Like
Svíþjóð, Guldön, 1990: Bonnier Carlsen
Þýskaland, Die Goldinsel, 1997: Goldmann
Þar sem djöflaeyjan rís, 1983, 1985, 1986, 1988, 1989, 1990, 1993: Mál og menning
Danmörk, Djævelens ø, 1997: Gyldendal
England, Devil‘s Island, 1999, 2000: Canongate
Finnland, Pirunsaari, 2000: Like
Færeyjar, Har sum djevlaoyggin dagar, 1991: Årting
Svíþjóð, Djävulsön, 1991: Bonnier Carlsen
Þýskaland, Die Teufelsinsel, 1997: Goldmann
Þar sem djöflaeyjan rís, Gulleyjan, Fyrirheitna landið, 1983-1989
England, Trilogy:Where Devil‘s Isle Rises, The Isle of Gold, The Promised Land: Canongate
Danmörk: Gyldendal
Svíþjóð: Bonniers
Finnland: Like
Holland: De bezige bij
Noregur, Djevelöya / Gullöya / Det forjettede land, 1991: Aschenhoug
Færeyjar,: Árting
Þýskaland: eichborn/Die andere Bibliothek/Paperback rights: btb)
Pólland: Marpress/as an e-book: Tower Press)
Mér er skemmt, 2010: Mál og menning
Ofsi, 2008: Mál og menning
Þetta eru asnar Guðjón, 1981: Mál og menning
Smásögur:
Endurfundir, 2007: Mál og menning
Söngur villiandarinnar og fleiri sögur, 1987: Mál og menning
Þættir af einkennilegum mönnum, 1996: Mál og menning
Rit almenns efnis
Ævisögur:
Jónsbók. Saga Jóns Ólafssonar athafnamanns, 2005: Mál og menning
KK: Þangað sem vindurinn blæs, 2002: Almenna bókafélagið
Ferðabækur:
Úti að aka: á reykspúandi Kadilakk yfir Ameríku, 2006: JPV-útgáfa
Hvar frómur flækist, 2004: Mál og menning
Myndabækur:
Innan garðs, 1989: Mál og menning
Leikverk
Leikritin Djöflaeyjan og Íslenska mafían, 1995: Mál og menning
Kvikmyndahandrit:
Djöflaeyjan, 1997:
Skytturnar, 1987:
Barnabækur
Didda dojojong og Dúi dúgnaskítur, 1993: Mál og menning
Litla systir og dvergarnir sjö, 1999: Mál og menning
Sagan af Gretti sterka, 1995: Mál og menning
